Síða 11 af 14
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 5. Jún. 2007 23:18:08
eftir Eiður
jæja offi, er þessi til sölu þegar hún er tilbúinn???
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 5. Jún. 2007 23:26:14
eftir Offi
Allt er falt fyrir rétt verð!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 6. Jún. 2007 14:04:25
eftir Offi
Það náðist nú ekki að gera mikið í dag... og þó! Hlutirnir taka bara sinn tíma. Ég klippti niður eldsneytisslöngu og setti klunkinn á og stillti í rétta lengd í tanknum, tróð áfyllingarröri og bakþrýstingsröri í og skrúfaði svo tappann í. Merkti að sjálfsögðu hvað er hvað, svo ekki fari allt í steik ef Eiður þarf að skipta um slöngur seinna meir!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 6. Jún. 2007 20:49:35
eftir Offi
Ja, ég skal segja ykkur það... ég komst í tímavél....! Hún virðist vera að dæla út korterum mér að kostnaðarlausu. Brún, flöt og fæst í Rúmfatalagernum á slikk...!
Allt í einu var bensíntankurinn kominn í, svona líka pikkfastur!
Svo skaust throttle servóið í á korteri og tæplega það
Næsta sem gerðist var að mótorinn skrúfaðist á!
Og svo áður en maður vissi af þá hafði heddið farið af mótornum og cowlingin á... og allt smellpassaði auðvitað, þökk sé mælingadeildinni á Hnit!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 6. Jún. 2007 21:25:25
eftir maggikri
Þvílíkt tæki Offi ! Kominn með gripinn heim. Ekki mikið annað að gera en setja saman flugvélar núna í þessu veðra víti. Var samt að spá í að fara út á völl þó að það sé hvasst og rigning(á morgun) Verð í bandi ef ég fer. Áttu ekki hlífðarpoka á fjarstýringuna(frá Þresti).
Kv
MK
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 6. Jún. 2007 21:40:13
eftir Offi
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 6. Jún. 2007 22:04:51
eftir maggikri
Stórglæsileg vél. Kemur skemmtilega á óvart stór og mikil vél með 120 mótor, þú ert svo stórtækur Offi. Ég verð að kaupa þessa nema að Eiður sé búinn að versla hana.
kv
MK
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 7. Jún. 2007 23:10:32
eftir Offi
Við ræðum það í rólegheitunum, félagi. En ég nældi mér í nokkur korter í kvöld eftir fínan fund hjá Þyt, þar sem slatti af módelum sást á lofti. En nú fer að síga á seinni hlutann af Korterinu... ég er rétt að rota þetta verkefni.
Ég byrjaði á smá uppskurði og fjarlægði lok sem er yfir servóinu fyrir hliðarstýrið og opnaði svo rifurnar þar sem armurinn kemur í gegn. Ég átti ekki nógu lítið straujárn til að geta strauja inní rifurnar, svo ég hélt borðhníf að straujárninu og hitaði hann og straujaði svo með honum. Virkaði fínt.
Svo setti ég servóið í og arminn á, eftir að hafa miðjað servóið með fjarstýringunni.
Og svo skrúfaði ég lokið á sinn stað á eftir.
Svo klippti ég canopíuna út og mátaði við og skrúfaði hana svo fasta.
Þau eru ekki mörg handtökin sem eftir eru í Korterinu.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 00:08:50
eftir Gaui
Offi
Ein smá aðvörun: settu fleiri skrúfur í framendann á canópíunni, því að ef vindurinn kemst undir, þá er þessi pía farin eins og svo margar aðrar. Hugsanlega geturðu líka sett límban af pínnu niður á framhluta módelsins svo enginn vindur komist undir.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 00:21:01
eftir Offi
Já, takk fyrir þetta. Ég ætlaði að líma canópíuna niður að framan. Það eru alltaf smá glennur þarna undir og hún fer í fyrsta flugi ef maður lokar þessu ekki! Point taken!