Síða 12 af 14
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 08:03:41
eftir Þórir T
Mér langar í flugmann í þessa vél !!1
mbk
Tóti
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 10:15:03
eftir Offi
Þú verður þá bara að kaupa hana!
Ég set þig sem vonbiðil nr. 3.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 10:22:41
eftir Þórir T
Hvert viltu að ég sendi "hana" ?
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 10:30:06
eftir Offi
Hahaha, góður!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 17:50:57
eftir Offi
Smá korter... svona rétt áður en ég fer að grilla!
Ég ætlaði að festa vænginn á vélina, en mér fannst þessir 4 mm boltar sem festu hann eitthvað svo veimiltítulegir að ég skaust í Byko og fékk mér 6 mm bolta og skífur og gaddarær við. Það er allt annað líf. Ég límdi skífurnar svo bara við vænginn. Þá týnast þær síður.
Svo tengdi ég throttle servóið við blöndunginn. Kannski geri ég eitthvað meira í kvöld, ef ég nenni! Ég á annars eftir að tengja hliðarstýrið, setja hljóðkút á og áfyllingarstút. Ég þarf að verða mér út um smá álprófíl til að festa stútinn á. Verst að ég þekki engan í húsaklæðningarbransanum, eins og Doksi.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 18:30:48
eftir Helgi Helgason
En er ekki prentplötu ál-ið nóg, þú ættir að geta fengið það í prentsmiðjum
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 19:38:03
eftir Offi
Jú, sennilega þarf ekki merkilegt þarna á bakvið... bara svo þetta sé ekki beint í gegnum cowlinguna, heldur festist á eldvegginn! Mér leggst eitthvað til, er ég viss um!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 8. Jún. 2007 21:51:01
eftir Þórir T
iss, ferð í næstu blikksmiðju og færð að gramsa í afgangakassanum... þar kennir ýmissa grasa..
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 9. Jún. 2007 21:27:03
eftir Offi
Jæja, ég er búinn að klára þau handtök sem hægt er í bili. Ég bíð eftir hljóðkút og áfyllingarstút og þá er bara eftir að ballansera.
Ég kláraði að tengja hliðarstýrið.
Svo skellti ég rofanum í.
Og síðan hrúgaði ég öllu saman, eftir að hafa þvegið allt kám og fingraför af vélinni, svona til að geta haft hana uppá punt á stofugólfinu, svona rétt á meðan kona og barn eru erlendis!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 9. Jún. 2007 22:28:07
eftir einarak
það vantar spinner á hana félagi