Síða 13 af 24

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 29. Nóv. 2009 21:30:49
eftir Gabriel 21
VVVVVVVVVááááááááááá hvað þetta er geðveik vél ekkert smá mikið detail :D:P

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 6. Des. 2009 21:53:59
eftir Kjartan
Örlítið meira úr Brekkusíðuni.

Hér eru aðallitirnir komnir á Bf109 hjá Gumma,

Mynd

Síðan er að grunna mótorhlífina og smávegis á stélinu.

Mynd
Mynd

Næst er það þessi líka flotti guli litur á vélarhlífina.

Mynd

Á meðan er ég enn að spasla og byggja upp í Stúkuni.

Mynd

og pússa þannig að allt passi.

Mynd

Þá er það að byrja að saga í sundur gróðurhúsið.

Mynd

Haldið þið að þetta verði ekki flott?????

Mynd

Næst er það rennan fyrir gróðurhúsið
Ég fræsti lista fyrir rennuna sem ég lími svo fastan í skrokkinn síðar meir.

Mynd
Mynd

Meira síðar kveðja úr Brekkusíðuni
KG

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 6. Des. 2009 23:08:44
eftir Messarinn
Sniðugur kjartan

Hérna er ágætis mynd sem ég fann í safni mínu sem sýnir nokkuð skýrt hvernig sleðarnir á stjórnklefanum eru. Atyglisvert er hvernig aftari stjórnklefa hlífin rennur niður eftir skrokk vélararinnar. og einnig er svolítil kúpa neðst á fremri stjórnklefa hlifinni sem nær allveg fram á fremsta glugga. Þessi Junkers Ju87 Stuka B-2 A5+AB tilheyrir Stab 1./St.g 1 og var mynduð í Pólsku hernaðar aðgerðinni. Mjóa hvíta línan náði aðeins niður að bláa botnlitinum sem var RLM 65 Hellblau. Efri camo litirnir voru standard 1940 litir, RLM 70 Schwarzgrun og 71 Dunkelgrun

(Muna eftir að Klikka á myndina til að stækka hana)

Mynd

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 8. Des. 2009 15:33:39
eftir Messarinn
Hérna sést fremri canopian allveg opin á þessum Ju87 B-2

(Muna eftir að Klikka á myndina til að stækka hana)

Mynd

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 8. Des. 2009 22:46:53
eftir Kjartan
Flottar myndir, takk fyrir þetta Gummi.

Kjartan

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 8. Des. 2009 22:51:06
eftir Messarinn
ekkert að þakka , það er bara gaman að pæla í þessu

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 10. Des. 2009 23:09:18
eftir Messarinn
Jæja áfram er haldið með Messerschmittinn hans Helmut Wick,
og aðal litirnir loks komnir á
Mynd


Til að ná þessum deplum eins og er á myndinni
Mynd


þá notaði ég gamlan pensil sem ég stytti hárin á og deplaði báða liðarnar með RLM 02
Mynd



Næst var að mála "Horrido" flugsveitarmerkið á véla hlífina
ég prentað út speglað merkið í mismunandi stærðum og klippti síðan út stærðina
Mynd



síðan fékk ég mér mjúkan blýant og strikaði ofaní útlínurnar
Mynd



límdi síðan merkið á vélarhlífina og krassaði yfir bakhliðina til að merkja
Mynd


og þá prentast útlínur merkisins á vélarhlífina
Mynd


Síðan er bara að mála eins og maður gerði í gamla daga.
Mynd


Meira seinna
Kv Messarinn

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 11. Des. 2009 11:55:50
eftir Jónas J
Glæsilegt hjá þér ;)

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 11. Des. 2009 16:03:17
eftir Messarinn
Þakka þér Jónas

Næst er að mála JG 2 Richthofen merkið á hliðarnar undir framrúðunni.
Svörtu línurnar utanum skjöldinn eiga að vera rauðar
Mynd

Meira seinna
Messarinn

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 11. Des. 2009 18:16:49
eftir Árni H
Þú ferð bara á kostum, mein freund! Sehr, sehr gut gemacht!!!!