Síða 14 af 14
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 11. Jún. 2007 10:15:08
eftir Offi
[quote=Gaui]Ef ekki mega vera tölustafir, þá er TF-OIS nærri 015.[/quote]
Það mætti líka útlenska þetta og hafa TF-QTR.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 11. Jún. 2007 15:27:56
eftir Helgi Helgason
Svo getur þetta verið KL 015
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Jún. 2007 15:54:42
eftir Offi
Ég dútlaði mér við það í hrakviðrinu síðustu 2 dagana að skera út stafi á vængina... og í dag skellti ég þeim á. Þar með er vélin merkt með nafni!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Jún. 2007 18:56:56
eftir Sverrir
Stórglæsilegt
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Jún. 2007 19:24:54
eftir Helgi Helgason
Já þetta er sannarlega stórglæsilegt, sérstaklega þar sem ég átti hugmyndina að nafninu
segið svo ekki að hugmyndir manns séu aldrei teknar til skoðunnar, takk Offi.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Jún. 2007 19:47:06
eftir Sverrir
Hugmyndir þínar eru aldrei teknar til skoðunnar... ánægður
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Jún. 2007 21:52:44
eftir Helgi Helgason
Æi já það er rétt..........þær eru bara framkvæmdar
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Jún. 2007 22:22:42
eftir Offi
Já, en að vísu hafði vélin vinnuheitið Korterið nánast frá upphafi, en þú hugsaðir þetta alveg rétt og lógískt!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 18. Jún. 2007 23:02:15
eftir Offi
Jæja, frúin er komin heim... og móttökurnar sem korterið fékk voru furðu blíðar. Vélin breiddi faðminn á móti henni á stofuborðinu, enda bíð ég enda eftir hljóðkútnum. En þau féllust í faðma á endanum, enda Korterið stór og stæðileg, líkt og eigandinn. Þess má geta að Korterið er ískyggilega nærri því að vera í kvartskala... 24% til að vera nokkuð nákvæmur!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 20. Jún. 2007 19:31:46
eftir Offi
Jæja, þá er þolinmæði konunnar þrotin. Vélin skal burt af stofuborðinu. Ég fékk hljóðkútinn í gær. Fræsti úr cowlingunni og skellti honum í, ásamt áfyllingarstút. Er að dútla mér við að stilla CG (þarf að setja 200g af blýi í rassgatið á henni) og svo vantar mig gulan 70 mm spinner.
Þá er Korterið klárt!