Hvað ætli séu núna margir fljúgandi fjósamenn á Íslandi? Eru þeir allir norðan heiða?
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 14. Júl. 2011 15:28:35
eftir Gaui
Einu sinni var Hafnfirðingur á ferð með poka undir hendinni. Hann hitti nágranna sinn, sem sagði "Hvað ertu með í þessum poka?"
"Hænur," sagði Hafnfirðingurinn.
"Viltu gefa mér eina ef ég get giskað á hvað þær eru margar? spurði vinurinn.
"Ef þú getur giskað á hvað þær eru margar," sagði Hafnfirðingurinn, "þá skal ég gefa þér þær báðar!"
Sem segir okkur að það séu tveir flughæfir Farmhandar -- og báðir fyrir norðan.