Síða 3 af 6
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 27. Maí. 2008 10:30:07
eftir Sverrir
Ég er margoft með farsíma í Katana frá Krill, t.d. eru flestar þessar mynda teknar með farsíma sem var í vélinni í það og það skiptið
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 27. Maí. 2008 23:54:42
eftir kip
Það er rétt!
Er komin áætluð dagsetning á jómfrúarflugið? Flugkomuhelgin hjá FMFA?
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 28. Maí. 2008 08:45:22
eftir Sverrir
Það verður vonandi vel fyrir þann tíma
Jafnvel snemma í júní ef pláneturnar raða sér rétt upp
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 1. Jún. 2008 19:08:46
eftir Sverrir
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 1. Jún. 2008 21:59:51
eftir Gaui
Það finnast Loftkjarnar og Ljótar spýtur víðar en í Kef!
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 2. Jún. 2008 02:14:52
eftir Sverrir
Greinilega
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 2. Jún. 2008 21:44:34
eftir Sverrir
Jæja, eftir að hafa klórað mér í hausnum í gærkvöldi og fylgt leiðbeiningunum með Weatronic út í ystu æsar hvað uppsetningu á samskipta rekli varðar þá ákvað ég bara að taka valtarann á þetta og þá small þetta(af einhverjum ástæðum vilja Weatronic menn ekki að leitað sé á netið við uppsetningu á reklinum en það var nauðsynlegt hjá mér).
Á fyrstu myndinni sjást upplýsingar um Weatronicið sem birtast þegar það er tengt, þeir gleymnu geta sett inn mynd af módelinu(hver ég?) ásamt lýsingu en einnig sést þarna hvaða tíðni og tíðnimótun er í notkun, hiti, staða rafhlaðna, staðsetning(ef þú ert með GPS) o.fl gagnlegt,
Á seinni myndinni sjást þessar 12 rásir sem ég get tekið við vinstra megin, efst eru svo útgangarnir. Glöggir aðilar sjá eflaust að ég hef víxlað rásum 2 og 7(hægra og vinstra hallastýri) en það er mikið þægilegra að tengja vinstri vænginn í servóútgang 2 heldur en 7 og svo öfugt fyrir hægri væng. Þá er þetta líka rétt í fjarstýringunni og engin hætta á ruglingi síðar meir. Þarna geta menn líka sett eigin nöfn á rásirnar, hópað servó saman, samstillt servó, stillt fail-safe, expo, kúrvur, o.fl. skemmtilegt. Þá væri líka hægt að forrita röð aðgerða sem nokkur servó geta framkvæmt en hægt er að stjórna allt að 8 servóum með einni rás.
Í staðin fyrir að stilla Weatronicið á rásina sem ég nota þá lét ég það skanna fjarstýringuna og þá segir það mér að útsending mín sé -0.85khz frá rásinni minni. Held að það sé innan velsæmismarka
Yfirlitsmyndin.
Inngangar og útgangar.
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 5. Jún. 2008 01:28:13
eftir Sverrir
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 5. Jún. 2008 11:45:16
eftir kip
Já sæll! Láta vita af svona atburðum á Melgerðismelum fyrirfram!!
Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill
Póstað: 5. Jún. 2008 12:15:07
eftir gudniv
ja..mikið helv... er vetralegt þarna fyrir norðan.... og til hamingju með vélina félagi.