Síða 3 af 5

Re: Mótor í vél?

Póstað: 15. Sep. 2009 23:20:13
eftir Gunni Binni
[quote=Páll Ágúst]En ef ég er með þetta hleðslu tæki fyrir bateríið sem að Gunnu Binni benti á, hvar get ég fengið svona til að geta tengt þetta í vegg? 23 volt í 12, Ef það er dýrt hér er þetta kanski til hjá kínverjunum líka :)[/quote]
Þú átt væntanlega við 230 volt. Þá gætirðu notað http://hobbycity.com/hobbycity/store/uh ... wer_Supply eða svipaðar græjur sem fást sjálfsagt í t.d. Íhlutum, eða tengja við bílrafgeymi.
Kveðja
Gunni Binni

Re: Mótor í vél?

Póstað: 15. Sep. 2009 23:35:00
eftir maggikri
Það fæst ýmislegt í búðinni hans Gunna Binna!
kv
MK

Re: Mótor í vél?

Póstað: 16. Sep. 2009 15:25:27
eftir Páll Ágúst
Já þar fæst mjög mikið, og já ég átti við 230 volt :D

Re: Mótor í vél?

Póstað: 17. Sep. 2009 19:14:31
eftir Páll Ágúst
Enn ein frauð vél sem ég á eftir að gera :)

En með havað lími mælið þið til að líma þetta frauð dót saman ? :rolleyes:

Re: Mótor í vél?

Póstað: 17. Sep. 2009 19:17:41
eftir Haraldur
Það fer eftir því hverskonar frauð þú ert að líma saman.

Það var einhver að mæla með UHU Poly

Re: Mótor í vél?

Póstað: 17. Sep. 2009 19:45:37
eftir Páll Ágúst
EPP, Deron?

Re: Mótor í vél?

Póstað: 18. Sep. 2009 09:23:08
eftir Björn G Leifsson
UHU Por heitir það. Þetta er glært snertlíim sem bræðir ekki pólýstýren plastið (Depron etc.) Hefur fengist í Pennanum Hallarmúla.

Foam safe cyanoacrylate lím (innihalda ekki leysiefni) eru vinsæl í frauðið því það er mjög fljótlegt að líma með því að nota "Kicker" spray en það þarf að passa að nota ekki mikið af líminu því það hitnar þá mikið og bræðir frauðið.

Eins og oft hefur verið rætt þá er erfitt að líma EPP. Það plastefni þolir nánast öll leysiefni og hefur mjög litla yfirborðsviðloðun (svipað og teflon). Þar held ég að algengast sé að nota venjulegt snertilím eins og 3M eða Jötun grip eða þess háttar. Hef ekki reynslu af svoleiðis límingum.

Re: Mótor í vél?

Póstað: 18. Sep. 2009 12:25:15
eftir Páll Ágúst
[quote=Björn G Leifsson](Depron etc.)[/quote]
etc.=??? virkar þetta ekki í depron?

Re: Mótor í vél?

Póstað: 18. Sep. 2009 12:50:06
eftir Páll Ágúst
Mundi =http://hobbycity.com/hobbycity/store/u ... =4711þessi mótor sem að Gunni Binni benti á passa fyrir F-117? Er þetta slow flyer prop sem fylgir þarna?

Re: Mótor í vél?

Póstað: 18. Sep. 2009 12:58:05
eftir Páll Ágúst
Selja kínverjarnir ekki EPP eða Depron? Helst svart depron :)