[quote=Helgi Helgason]Maggi hvaða fimm hús eru það?[/quote]
Í Reykjanesbæ eru það:
Reykjaneshöllin, Academian, Sunnubraut, Heiðarskóli, Njarðvíkurskóli. Gætu meira að segja verið fleiri í Reykjanesbæ eins og Akurskóli og Myllubakkaskóli. Íþróttahúsið á Ásbrú. Myllubakkaskóli er sennilega of lítill.
Síðan er möguleiki á flugskýlum en það sem er erfiðast við það er aðgangurinn að þeim. Nóg er af flugskýlunum hérna.
Svo erum við með Íþróttahús í Grindavík, Garðinum, Sandgerði og Vogum, jú við erum Flugmódelfélag Suðurnesja.
Það eru allavega 12 íþróttahús á svæðinu sem gætu notast í þetta.
kv
MK
Re: Inniflug - Könnun á áhuga og kynning.
Póstað: 3. Okt. 2009 23:05:54
eftir Helgi Helgason
[quote=Sverrir]Þú ættir að vita það íþróttaálfurinn þinn. [/quote]
Ég veit um öll íþróttahúsin Glanni en ég veit líka að sum húsin eru ekki og tel að önnur séu ekki opin fyrir okkur vegna þess að þar séu allir tímar nýttir.
Akademían er útúr myndinni því þar á að breyta salnum í fimleikasal með tilheyrandi aðgerðum s.s. að grafa gryfju.
Ljónagryfjuna(íþróttahús Njarðvíkur fyrir þá sem ekki vita það) myndi ég álykta að allir tímar eru fráteknir, spurning með morguntíma um helgar en þeir detta út þegar umferðir í ýngri flokkunum er í gangi. Þeir nota líka Akurskóla. Æfingatafla Njarðvíkur er hérna: http://umfn.is/Korfubolti/Aefingatafla09/