Gott dæmi um afhverju gleraugnaglámar eins og ég nota ekki svona pappír til að hreinsa gleraugun, en fjandi gott til fínpússningar ef þið hafið svona góðar græjur
Re: Í Slippnum
Póstað: 1. Jan. 2013 02:13:30
eftir Árni H
Þetta er bara kúúúúúúúúúúúúl/svaaaaaaaaaaalt...
Já, og gleðilegt nýár til okkar allra!
Re: Í Slippnum
Póstað: 3. Jan. 2013 23:27:36
eftir Árni H
Í slippnum í kvöld var unnið svo hratt að módelsmíði að félagarnir festust varla á minniskubb...
Séð inn eftir hluta af aðstöðunni:
Að venju er ég að fikta í myndavélum og forritum - ég tók ljósmynd á 5 sek fresti og splæsti saman í timelapsemyndband.
Kv,
Árni H
Re: Í Slippnum
Póstað: 3. Jan. 2013 23:56:41
eftir Sverrir
Flott, hvað nota menn í snúninginn?
Re: Í Slippnum
Póstað: 4. Jan. 2013 00:26:05
eftir Björn G Leifsson
[quote=Sverrir]Flott, hvað nota menn í snúninginn?[/quote]
Eitthvað svona væntanlega?:
(Eggjaklukka)
Re: Í Slippnum
Póstað: 4. Jan. 2013 12:47:56
eftir Árni H
Rétt hjá Birni! Ég notaði sérútbúna eldhúsklukku
Re: Í Slippnum
Póstað: 4. Jan. 2013 19:44:11
eftir Gaui
Það er kominn nýr smiður í Slippinn. Björn Sigmunds flutti inn í gær:
Og hann fór að smíða módel sem hann er búinn að vera með í smíðum í tugi ára:
Re: Í Slippnum
Póstað: 4. Jan. 2013 21:05:27
eftir Patróni
Flott aðstaða strákar....
Re: Í Slippnum
Póstað: 24. Jan. 2013 22:59:13
eftir Árni H
Smíðakvöldin í Slippnum ganga vel
Gufuvélin sér um að halda réttu rakastigi á viðkvæmum smíðisgripum:
Smíðað og spekúlerað:
Warbird í fæðingu:
Og... og... eru þetta kínverskir rafmagnsvírar, sem hafa haldið innreið sína Norðanlands?