Síða 3 af 5

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 7. Jún. 2013 20:11:01
eftir Steinþór
Nú fer að líða að Patró,var að skoða langtímaspá sem er mjög góð,vona að sem flestir geti komið. Að taka ferjuna Baldur er mjög þægilegt ferðalag. Þetta er flott flugkoma og hafa Patrómenn gert þetta frábærlega vel í alla staði. Nú er bara að láta vaða á staðinn og taka þátt í mjög skemmtilegri flugkomu.

Kv. Steini litli málari.

Mynd

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 7. Jún. 2013 21:02:14
eftir lulli
[quote=Spitfire]Nú væri gott að fá smá talningu hverjir ætla að mæta, Gaui von Grísará með 3 stk., Gauinn og Páll Ágúst, reikna fastlega með frænda og málaranum sem kom nú þessu brjálæði á koppinn :D

Fleiri?????[/quote]
B&L 2stk. enn er eftir að pakka í ferðatösku og þá kemur í ljós hvort það verður
frisbeediskur eða eitthvað aðeins kraftmeira,,
en hvort sem það verður, þá Hlökkum við rosalega,rosalega...Patró er algjörlega must hjá okkur!
Kv. B&L

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 7. Jún. 2013 21:11:51
eftir Spitfire
Upphafspósti hefur verið breytt með nýjum upplýsingum varðandi uppáhaldshelgi okkar allra :D

En kominn tími til að skjóta inn smá fréttum úr herbúðum okkar Vestfirðinga, höfum verið óvenju þögulir hér á spjallinu undanfarið. Undirbúningur fyrir flugkomuna hefur gengið framar vonum, og næsta vers hjá oss er að koma hinni einu sönnu Módelsmiðju í sýningarhæft ástand fyrir gesti vora. Það mun gerast á morgun, laugardag.

En á sunnudaginn verða brettar upp ermar og farið af stað með kústana, eftir erfiðan vetur er virkilega þörf á að sópa okkar heittelskaða Sandodda, mæting verður úti á velli kl. 16:00 með strákústa að vopni, sjálfboðaliðar sem mæta snemma velkomnir :cool:

Semsagt allt á réttu róli, sjáumst eftir viku :D

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 7. Jún. 2013 21:14:27
eftir Spitfire
[quote=lulli][quote=Spitfire]Nú væri gott að fá smá talningu hverjir ætla að mæta, Gaui von Grísará með 3 stk., Gauinn og Páll Ágúst, reikna fastlega með frænda og málaranum sem kom nú þessu brjálæði á koppinn :D

Fleiri?????[/quote]
B&L 2stk. enn er eftir að pakka í ferðatösku og þá kemur í ljós hvort það verður
frisbeediskur eða eitthvað aðeins kraftmeira,,
en hvort sem það verður, þá Hlökkum við rosalega,rosalega...Patró er algjörlega must hjá okkur!
Kv. B&L[/quote]

Intro pakkast ansi vel saman fyrir landshornaflakk ;)

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 8. Jún. 2013 16:02:46
eftir Spitfire
Smiðjan skrúbbuð og skúruð, ef menn og konur vilja sjá, þá er bara að mæta á næstu helgi :cool:

Næsta vers: bretta upp skálmar og hjóla í völlinn með kústana ;)

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 8. Jún. 2013 20:53:16
eftir kpv
Þá er tilbúin auglýsing fyrir pöpulinn sem verður sett upp í búðum og víðar.

Mynd

Þessi samkoma hefur notið velvildar bæjarbúa og vonandi verður svo áfram.

Með kveðju, Kristján.

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 9. Jún. 2013 00:22:07
eftir lulli
Þetta gerðist í fyrra, - flott Upprifjun frá Eysteini


Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 9. Jún. 2013 00:53:19
eftir Gauinn
Æðislegt!!!
Allt gott við það.
Ekki of langar senur af sama atriðinu.
Kyrrmyndir "klipptar" inn í, sem brýtur upp áhorfið.
Leikendur hver öðrum betri, nema kannski þessi í hriðjuverkagallanum, en hann hreyfði nú ekkert, svo það slapp.
Þetta er flott"

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 9. Jún. 2013 21:41:41
eftir Patróni
[quote=Spitfire]Nú væri gott að fá smá talningu hverjir ætla að mæta, Gaui von Grísará með 3 stk., Gauinn og Páll Ágúst, reikna fastlega með frænda og málaranum sem kom nú þessu brjálæði á koppinn :D

Fleiri?????[/quote]
Og muna að hafa í talningunni makanna og börn uppá það hvað við getum sagt þeim komandi höfðatölur á sjóræningjarhúsinu:-)

Re: Patreksfjörður International 2013

Póstað: 9. Jún. 2013 21:47:38
eftir Patróni
Flugvöllurinn gerður klár í dag,sópuð og fægð brautinn svo að hún ætti að vera að mestu lausmöls laus og mannskapurinn hjá MSV tók út húsnæðið útá velli og auðsjáanlegt að lítið þarf að gera til að gera hlutina "kósí" og flotta þar.Svo nú er spenningurinn í oss að magnast fyrir komu ykkar og eins og áður var sagt er fólk farið að spurja um þetta hér heima og eigum við von á fínni mætingu frá heimamönnum og eins frá ykkur...hlökkum til að sjá ykkur og ykkar rellur und bæðövei?Ætla ekki bleiku fyðrildinn að láta sjá sig með flugkostina sýna?