Síða 3 af 3
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 4. Júl. 2007 16:15:44
eftir Þórir T
Hefurður prófað að nota einfaldlega Trélím, hefur reynst mér best í þessu frauð bralli....
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 4. Júl. 2007 17:10:39
eftir Björn G Leifsson
Ein aðferð við að klæð/spónleggja frauðkjarna, sem ég hef séð lýst en ekki prófað sjálfur er að bera venjulegt hvítt trélím ("Alifatiskt" lím td. Griplím) á báða fletina og láta þorna. Nota svo straujárn til að strauja klæðninguna á. Þornaða límið bráðnar eins og hita-límbyssu-lím.
Án reynslu af slíkri vinnu og þar með án ábyrgðar þá líst mér sjálfum best á PU límið en það verður að gæta þess að festa efnið vel því þegar PU-límið freyðir þá ýtir það hlutunum sundur. Þegar frauð-kjarnar eru skornir þá geymir maður auðvitað ytri bútana og notar þegar þetta allt er pressað saman.
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 4. Júl. 2007 17:25:33
eftir Agust
Þegar ég var eitt sinn að skera út væng í Super Lightning notaði ég 15 VAC spennubreyti. Forvafið var 230V og tengdi ég það um Ticino ljósadimmer. Þannig gat ég stillt hitann.
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 4. Júl. 2007 18:04:38
eftir Offi
Ég gerði nokkrar tilraunir með mismunandi lím og ég er búinn að finna lím sem ég held að henti bara flott. Fyrst að hinum tegundunum, svona til að byggja upp spennu:
Í þriðja sæti var -
Trélím: Það er hugsanlega nothæft til að líma saman frauðhluta, en það dugar engan veginn til að líma ál á frauð
Í öðru sæti var -
Epoxý: Það límir fínt en er leiðinlegt í vinnslu.
Í fyrsta sæti var -
Fischer Konstruktions Kleber: Ég á eftir að sjá hvaða útgáfur maður finnur af þessu lími, en það límdi prufuplötuna alveg dúndurvel á frauðið. Ég hef reyndar smá reynslu af þessu lími, ég þurfti að rífa upp spýtu sem ég límdi óvart á rangan stað á baðherberginu mínu og ég hélt að gólfið færi allt með! Meðan ekki koma betri kandídatar, þá er þetta límið sem ég ætla að nota.
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 4. Júl. 2007 18:57:21
eftir Sverrir
Farðu bara sparlega með límið svo þú bætir ekki óþarfa þyngd á módelið.
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 28. Jún. 2008 16:23:47
eftir Árni H
Jæja, Offi. Ertu ekki búinn að safna nægu efni í klæðninguna?
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 1. Júl. 2008 19:22:38
eftir slunginn vikingur
Re: Zagi 12 - Gyllti Víkingurinn
Póstað: 1. Júl. 2008 23:15:25
eftir Árni H
Þessi Pringlesraketta er alveg brillíant - ég á eftir að prófa hana! Sjá hér:
http://www.extremflug.de/seite022.htm