Síða 4 af 24

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 2. Des. 2008 23:07:46
eftir Messarinn
Ég prófaði að nota lakkuppleysi á Focke Wulf-inn og tókst það bara nokkuð vel
Hérna ætla ég að prufa lakkleysinn sem heitir MEKLÓ
Mynd

Pennsla bara þunnt lag á flötinn
Mynd

Og skef svo strax málninguna af með stál spaða ,létt og auðvelt
Mynd

Svo í restina er flöturinn strokin með blautri tusku
Mynd

Svo er bara skafa alla flugvélina

Meira seinna

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 3. Des. 2008 20:08:30
eftir Gaui
Og ég sem var í marga mánuuði að mála þetta með 10 mm pensli -- bú hú :o

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 3. Des. 2008 21:57:49
eftir Kjartan
Ha Ha og Gummi er bara að byrja :lol: :lol:
Hér er Stuku skrokkurinn tilbúin til að grunn og detail.

Mynd

Og Gummi eitthvað að dunda.

Mynd

Kveðja
Kjartan G

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 10. Des. 2008 00:00:44
eftir Messarinn
Áfram er smíðað í Brekkusíðunni

Kjartan er að vinna í að festa servo-in í vængin á Stúkuni
Mynd

og hér er hann að setja saman servo box
Mynd

Ég kláraði að skafa alla málninguna af skrokknum og vélarhlífinni
Mynd

Hér sést vélarhlífin og gamall kunningi Gauja birtist aftur
Mynd

Nærmynd af kunningjanum, hvaða skepna ætli þetta sé?? dínasaur eitthvað ;) ;)
Mynd

Kveðja

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 10. Des. 2008 08:09:55
eftir Björn G Leifsson
Klesst maríubjalla, sýnist mér

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 10. Des. 2008 17:18:45
eftir Messarinn
Já Björn eitthvað svoleiðis kvekendi.
Kom svona steypt í cowling-una þegar Guðjón keypti hana veturinn 2004-2005
Mynd

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 14. Des. 2008 22:57:03
eftir Kjartan
Haldið var áfram í Brekkusíðuni un helgina
Servo fyrir hallastýri og flapsa komin á sinn stað
Þá eru það loftbremsurnar

Mynd

Hér er svo önnur mynd og Focke Wulf á bakvið

Mynd

Kjartan

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 3. Jan. 2009 19:27:42
eftir Kjartan
Áfram er smíðað í Brekkusíðunni.
Þá er að tengja hallastýri, flapsa og loftbremsur.

Mynd

Svona gekk ég frá loftbremsunum.

Mynd

Þá eru það skálarnir við hjólin.

Mynd
Mynd
Mynd

Er þá ekki komin tími á að stilla Stukuni upp.

Mynd
Mynd

Og sjá hvernig 250 kg sprengja lítur út undir Stukuni, (Ótrúlega létt kílóið í sprengjuni)

Mynd

Kjartan

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 4. Jan. 2009 00:50:55
eftir Sverrir
Glæsilegt :cool:

Var ég búinn að nefna að Weatronic græjan væri kjörin fyrir öll þessi servó :)

Re: Brekkusíðu Luftwaffe

Póstað: 4. Jan. 2009 15:40:11
eftir maggikri
Duglegir kallar þarna fyrir norðan.
kv
MK