Síða 4 af 5
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 2. Okt. 2009 11:31:40
eftir Slindal
Svo eitt að lokum. Þá á ég afrit af teikningu í fullri stærð af vélinni. Er tilbúinnað að láta hana fyrir ljósritunakostnaði.
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 2. Okt. 2009 18:23:01
eftir Ágúst Borgþórsson
Takk fyrir upplýsingarnar Sævar. Þetta verður skemtilegt verkefni
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 2. Nóv. 2009 00:36:35
eftir Slindal
Nú er Pardusinn eins og ég kalla hana búin að fá smá uppliftingu. Lit og annann væng. Mikið sætari svona.
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 2. Nóv. 2009 14:44:59
eftir Valgeir
flott vél en hvernig flígur hún ?
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 5. Nóv. 2009 23:37:11
eftir Slindal
Alveg eins og engill. Sérstaklega eftir að ég bætti efri vængnum við. Eina sem væri hægt að setja út á er að hún mætti svara örlítið betur á hallastýrunum. Hún svífur helmingi betur núna. Lenti í smá krassi í gær. Ég reversaði óvart hallastýrunum áður en ég tók á loft. Þá fór fyrir mér eins og Sverri Þóroddsyni um árið djúp vinstri beygja beint í jörðina. En hún verður kominn í lag um helgina. Ef veður leyfir verðum við félagarnir út á Seltjarnarnesi á túninu við Nesstofu á laugardaginn. Mjög skemmtilegt svæði fyrir minni vélar. Gaman væri að sjá fleiri þar einhvern daginn.
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 15. Jún. 2010 07:40:42
eftir Slindal
Nú er komin á teikniborðið þriðja kinslóð Pardus vélanna. fyrsta flug sennilega í 25 viku . Vélin er öll rennilegri en fyrrirennarar hennar. Hún er um 5 cm lengri, vænginn færði ég um 1 cm framar. Lengdi húddið aðeins til að það færi betur um batteriíð. Var að keyra hana á 3 sellu 3700 mAh.
Mótorinn er frá Turnegy 3542 1000kv aðeins hæggengari en var í fyrri vélinni. Ég held að það verði ekkert mál hin var svo spræk var með 8x6 propp. svo er þessi eitthvað léttri. nú nota ég Depronið sem ég keypti í vetur. Það eru til sölu nokkrar plötur ef einhver hefur áhuga. 1.500 kr stk. 120x 42 cm ca.
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 15. Jún. 2010 07:53:09
eftir Slindal
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 15. Jún. 2010 08:00:11
eftir Slindal
Svo kemur smá getraun. þetta er nýjasta afkvæmið en spurningin er hvernig vél er þetta þekkiði hana svona aftan frá. Engin verðlaun í boði að þessu sinni en gaman væri að fá getgátur.
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 18. Jún. 2010 08:39:22
eftir ErlingJ
er það lazy bee ?
Re: Foam vél frá grunni
Póstað: 25. Jún. 2010 11:30:56
eftir Slindal
Gettu betur.