Síða 4 af 7
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 10. Des. 2009 08:23:48
eftir Gaui
Ég gerði það sem Sverrir lýsir á Fokke Wolf, sem Gummi er að endursmíða og það virkaði vel. Hugmyndin með segulstálið er alveg brilliant. Þá myndi ég setja rör í vænginn sem byssan smellpassar inní og hafa segulstálið í botni rörsins og á enda byssunnar.
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 10. Des. 2009 09:59:56
eftir Eysteinn
[quote=Sverrir]Gætir t.d. sett bolta upp í byssuna og svo gaddaskinnu eða eitthvað annað með skrúfgangi í vænginn.[/quote]
Já, það er góð lausn, en gegur ekki vegna brúnar á byssu sem leggst utan á væng brún. Ef ég myndi skrúfa byssuna í þá þarf ég að stækka gatið á væng brún til þess að byssan gangi inní vænginn og þá er ég búinn að veikja væng brúnina töluvert.
[quote=Gaui]Ég gerði það sem Sverrir lýsir á Fokke Wolf, sem Gummi er að endursmíða og það virkaði vel. Hugmyndin með segulstálið er alveg brilliant. Þá myndi ég setja rör í vænginn sem byssan smellpassar inní og hafa segulstálið í botni rörsins og á enda byssunnar.[/quote]
Ég ætla að þróa segul hugmyndina áfram
Hvar fæ ég hentugt segulstál?
Kveðja,
Eysteinn.
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 10. Des. 2009 10:53:49
eftir Sverrir
[quote=Eysteinn]Já, það er góð lausn, en gegur ekki vegna brúnar á byssu sem leggst utan á væng brún. Ef ég myndi skrúfa byssuna í þá þarf ég að stækka gatið á væng brún til þess að byssan gangi inní vænginn og þá er ég búinn að veikja væng brúnina töluvert.[/quote]
Gætir tekið byssuna í sundur, fest neðri partinn og haft þann efri skrúfaðann.
Gummi gerir það svoleiðis á sinni vél ef ég man rétt. Spurning hvort hann eigi góða mynd af því?
[quote=Eysteinn]
Hvar fæ ég hentugt segulstál?[/quote]
Það ætti að vera eitthvað úrval til í
Handverkshúsinu í Bolholti 4.
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 10. Des. 2009 18:01:24
eftir Messarinn
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 10. Des. 2009 20:28:50
eftir Jónas J
Góð hugmynd að setja segul í vænginn og svo bara litla skrúfu í byssuna og málið dautt
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 10. Des. 2009 22:46:39
eftir Messarinn
[quote=Jónas J]Góð hugmynd að setja segul í vænginn og svo bara litla skrúfu í byssuna og málið dautt
[/quote]
Ég er búinn að föndra mikið með segla og að setja hann á byssuhlaupið og vænginn mun ekki virka og vera bara til eilífra vandræða.
Til að veikja ekki væng frambrúnina er best bora gat í frambrúnina og líma kubb með gaddaró innan við.það er sterkt og endist
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 6. Jan. 2010 19:28:26
eftir Eysteinn
Sælir allir,
Mig vantar loftventil með magnstýringu.
Þegar ég var að prófa Retract kerfið á Spitfire flugvélinni minni var mér ansi brugðið þegar hjóla stellið small upp með því líkum látum! Vil sjá hjólin fara hægt og skalalega upp
Endileg komið með góðar hugmyndir hér að neðan.
Svona er ventillinn sem kom með flugvélinni.
Kveðja,
Eysteinn.
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 6. Jan. 2010 20:55:38
eftir Ágúst Borgþórsson
Setur þú ekki bara ál tappa með pínulitlu gati inní slönguna að ventlinum? Hugmynd
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 6. Jan. 2010 21:56:27
eftir Sverrir
Getur líka fengið þér wheel collar eða tengiskó fyrir rafmagnsvíra og notað skrúfuna til að ýta slöngunni saman, mundu bara að slétta skrúfuendann svo hann geri ekki gat á slönguna.
Re: Spitfire Mk.IX frá Top Gun R/C aircraft
Póstað: 6. Jan. 2010 22:19:06
eftir Eysteinn
[quote=Ágúst Borgþórsson]Setur þú ekki bara ál tappa með pínulitlu gati inní slönguna að ventlinum? Hugmynd
[/quote]
[quote=Sverrir]Getur líka fengið þér wheel collar eða tengiskó fyrir rafmagnsvíra og notað skrúfuna til að ýta slöngunni saman, mundu bara að slétta skrúfuendann svo hann geri ekki gat á slönguna.[/quote]
Takk fyrir þessar hugmyndir, þær eru ljómandi góðar. Ég hefði kannski átt að pósta þetta undir smíðaþræðinum mínum.
Kær kveðja,
Eysteinn.