Síða 4 af 6

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 8. Apr. 2012 16:39:43
eftir Gaui
Takk fyrir ábendinguna Hrannar -- var ekki búinn að sjá þennan.

Ég ætla nú samt að halda mig við tústrókara -- ég kann betur við þá. Venjulegi útreikningurinn er að bæta við 1/3 í rúmtaki frá tvígengis í fjórgengis, svo að .52 fjórgengis er sambærilegt við .40 tvígengis.

:cool:

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 8. Apr. 2012 17:47:26
eftir Spitfire
Ekki málið Gaui minn, bara gaman að sjá smíðina á Heinkel komna aftur í réttan gír, og endilega leyfðu okkur að fylgjast með, c.a. 90% okkar félaga í Módelsmiðjunni eru eitilharðir seinniheimstyjaldarflugdellukallar, og þó að bara ég pósti, þá máttu reikna með a.m.k 10 öðrum löggiltum félögum MSV að fylgjast með :)

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 9. Júl. 2012 17:31:07
eftir Gaui
Ég er búinn að vera að setja mótorfestingarnar saman. Þær byrjuðu líf sitt sem einfaldir kassar, en síðan fór einfaldleikinn til fjalla og flækjustigið jókst svo um munaði.

Hugmyndin hjá hönnuðinum er að líma ramma á kassana og síðan setja þétt frauðplast á milli. Svo sker maður plastið til og setur glerfíber utanum allt saman og þá er skinnið á mótorfestingarnar komið. Ég notaði skurðarbogann okkar Árna til að skera frauðplastið í réttar þykktir. Ég bara setti undir vírinn þar til hann var í réttri hæð frá borðinu og renndi síðan frauðplastinu eftir borðplötunni. Rafmagnið til að hita vírinn kemur frá 14 V orkugjafa sem ég nota til að tengja hleðslutækið mitt:

Mynd

Það var svosem ekki mikið mál að líma rammana og frauðið á botn mótorfestinganna:

Mynd

Og þegar búið var að skera í burtu allt sem ekki líktist mótorfestingu, þá leit þetta svona út:

Mynd

En þá var komið að erfiða partinum. Efri hlouti mótorfestinganna þarf að vera laus og því má ekki líma rammana fasta. Þess vegna byrjaði ég á því að skrúfa nef-hringinn á eins og á að gera og svo setja frauð og ramma til skiptis. Hér er fyrsta frauð og ramma samlokan komin á:

Mynd

Og eftir langa og leiðinlega samsetningu þar sem ég þurfti að láta límið á hverri frauð/ramma samsetningu að taka sig áður en ég gat haldið áfram, þá líta mótorfestingarnar svona út:

Mynd

Nú þarf þetta að fá að harðna alveg áður en ég byrja að skera þetta til og set aftari hlutann á. Hann gengur utan um frambrúnina á vængnum og þarf að vera laus á, alla vega að hluta, til að hægt sé að komast að tankinum, þannig að nú þarf ég að skoða teikningarnar vandlega og lúslesa leiðbeiningarnar til að komast að því hvað kallinn var að hugsa. Ég læt ykkur vita hvernig gengur.

:cool:

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 9. Júl. 2012 18:34:28
eftir Gauinn
Snilld! Þarna vildi ég vera fluga á vegg!

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 9. Júl. 2012 19:43:58
eftir Messarinn
Þetta er flókið það er satt en ég get ekki ímyndað mér að þér finnist þetta leiðinlegt Gaui þar sem þú telst nú ekki til byrjanda í flugmódelsmíði og þessir mótorbúkkar eru magnaðir massífir og þrælsterkir

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 9. Júl. 2012 22:11:25
eftir einarak
þetta bleika einangrunarplast, fylgdi það með eða fæst þetta hér?

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 9. Júl. 2012 22:18:59
eftir Guðjón
Ég fékk þetta plast í Bykó

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 10. Júl. 2012 09:20:01
eftir Gaui
Ég náði í þessa plötu í Húsó fyrir mörgum árum. Hún hefur nýst í margt, ekki sýst sem undirlag þegar verið er að gera eitthvað skemmtilegt, eins og hefla og pússa eða sprauta eða svoleiðis.

:cool:

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 15. Júl. 2012 14:05:15
eftir Gaui
Nú er ég búinn að líma niður næstum allt frauð sem ég held ég þurfi, nema loftinntak hægra megin á báðum mótorfestingum, og búinn að gróf forma þær. Ég þarf að tálga smá í viðbót og svo þarf ég að fara að grafa upp sandpappírslagerinn minn og byrja að pússa.

Ég stillti annarri mótorfestingunnu upp á vængmiðjuna til að sjá hvernig þetta kemur út. Módelið stækkar ört:

Mynd

Sjáumst seinna, líklega löðrandi í bleiku ryki.

:cool:

Re: Heinkel He 111 F8+GM

Póstað: 21. Júl. 2012 15:50:07
eftir Gaui
Ég held að ég sé ekki að ljúga neinu ef ég segi að mér finnist ekkert sérstaklega gaman að tálga og pússa bleikt frauðplast. En þetta var nokkuð sem þurfti að gera. Annað sem ég þurfti að gera var að búa til tvo nýja N3 ramma. Teikningarnar sýna fjóra, en bara tveri komu með í kittinu. Tvo á að líma ofan á kassana fyrir tankana, en hinir tveir eiga að fylgja lokinu. Þessa tvo sem vantaði bjó ég til úr 4mm krossviði og límdi þá ofan á kassana. Götin í römmunum eru 1/4", eða 6,4mm, en ég átti bara 6mm díla, svo ég fyllti í götin með balsa og boraði ný 6mm göt.

Mynd

Nú gat ég pússað allt niður og síðan notað Red Devil fylli til að reyna að fá hlífar og lok slétt. Ég vissi að þetta yrði aldrei fullkomið, svo ég lét með nægja ANG, eins og húsasmiðir segja (andskotans nógu gott).

Mynd

Rásin þar sem útblásturgreinarnar koma er klædd með 0,8mm krossviði til að fá þær beinar og sléttar:

Mynd

Og þá var hægt að byrja á glerfíbernum. Ég á smávegis af kolfíbertægjum, svo ég setti þær aftaná þar sem kæliloftið af mótornum kemur út. Í leiðbeiningunum segir að maður skuli setja tvö lög af 3oz. glerfíber, en ég á ekki svo þykkan fíber, svo ég set bara þrjú lög af því sem ég á og vona að það verði nóg.

Mynd

Og hérna er komið eitt lag af glerfíber á allt frauðið:

Mynd

Óhöppin gerast við og við og tungan aftur úr annarri mótorfestingunni brotnaði af þegar ég var að pússa og skera frauðplastið. Ég stóðst freystinguna að líma hana á aftur, því líkurnar segja að hún brotni bara af aftur seinna. Ég reyni að splæsa hana á einhvern vegin þegar kemur að því að líma mótorfestingarnar á vænginn:

Mynd

:cool: