Síða 4 af 5
Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 13. Jún. 2013 19:11:31
eftir Patróni
Allt að gerast
Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 13. Jún. 2013 20:49:28
eftir Gauinn
Er nokkur á vesturleið sem getur stungið vængnum af Afa inn á milli hjá sér.
Hann er 185 29 cm.
???
Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 13. Jún. 2013 22:20:37
eftir Sverrir
Virðist ætla að verða smá líf á
myndastraumnum!
Og fyrsta ferð Baldurs í fyrramálið er fullbókuð, ætli það sé ekki allt fólk á leiðinni á Patró Int!?

Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 13. Jún. 2013 22:24:31
eftir Haraldur
Góða ferð félagar og góða skemmtun allir.
Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 13. Jún. 2013 23:44:16
eftir Páll Ágúst
Eintóm gleði í marga daga

Ég og Gauinn komum á húsbílnum með Katana og fleiri vélar. Sjáumst á morgun!
(við komum líklega ekki fyrr en milli 23 og 24 ef einhver verður þarna í flugstöðinni)
Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 14. Jún. 2013 00:16:40
eftir Gauinn
[quote=Páll Ágúst]Eintóm gleði í marga daga

Ég og Gauinn komum á húsbílnum með Katana og fleiri vélar. Sjáumst á morgun!
(við komum líklega ekki fyrr en milli 23 og 24 ef einhver verður þarna í flugstöðinni)[/quote]
Komum, rólega, örugglega og virðulega á 33ára gömlum bílnum, en léttir, hressir og til í allt.
Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 14. Jún. 2013 00:55:25
eftir kpv
Við Módelsmiðjumenn fórum yfir á Sandoddavöll í kvöld með fánastangir og annan nauðsynlegan búnað. Lognið og blíðan ógurleg. Brautin ný sópuð og allt að smella saman. En heimferðin gekk seint, bæði var erfitt að slíta sig frá vellinum og svo voru stórhvelir að veiðum upp við land þannig að maður varð að stoppa hvað eftir annað til myndatöku og að spjalla við fólk sem var að horfa á hvalina.
En að lokum þraut myndavélabatterí svo maður komst heim. Nú finn ég ekki snúruna til að flytja myndir úr vélinni svo ég verð að vísa í frétt af Vísi.is með hvalamyndum Janusar okkar í Módelsmiðjunni.
Sjá frétt frá fyrr í júní.
http://www.visir.is/storhveli-lifga-upp ... 3130609247
Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 14. Jún. 2013 01:04:54
eftir Spitfire
Mikið fjör við undirbúning í kveld, start og samsetningarborð sótt á Wembley Stadium:
Formaðurinn og ritarinn undirbúa losun úti á velli:
Svo ég vitni í meistara
Eddie Izzard: Do you have a flag
Að því loknu var kaffivélin og flugmódel ræst og tekið létt flug:
Verðum líklega mættir út á völl milli kl. 5 og 6 á morgun, sjáumst ferskir þá

Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 14. Jún. 2013 04:55:36
eftir Sverrir
Lagður af stað vestur!

Re: Patreksfjörður International 2013
Póstað: 14. Jún. 2013 09:50:01
eftir kpv
Hvalamyndir komu ekki eins vel út og maður vonaði.

Hvalaskoðun í firðinum verður ókeypis í boði Módelsmiðjunnar.
Með kveðju, Kristján.