Síða 4 af 14
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 20. Mar. 2007 17:03:42
eftir Agust
[quote=Offi]Henni verður flogið eftir 15 ár... eða aldarfjórðung. Ég á eftir að ákveða hvort verður fyrir valinu. :rolleyes:[/quote]
Offi meinar auðvitað aldarkorter
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 20. Mar. 2007 22:02:55
eftir Helgi Helgason
Svo áttu bara eftir þrjú korter þá er þau samtals fimmtán korter (eða átti ég að segja korter korter)
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 23. Mar. 2007 14:49:42
eftir Offi
Hér var að berast áríðandi tilkynning. Vegna anna við önnur störf hefur þátturinn korter dagsins nú fallið niður 3 daga í röð. Vonandi verður hann aftur á dagskrá mánudaginn 26. mars. Eigið góðar stundir með nægum bjór og balsa.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 10. Apr. 2007 14:32:57
eftir Offi
Jæja, góðir hálsar... Korterið hefur göngu sína á ný eftir að hafa fallið niður í nokkrar vikur vegna anna, veikinda, utanlandsferðar og páskafrís, nokkurn veginn í þessari röð.
Þetta korterið fór í mælingar og riss... svo ég geti nú sett mótorinn á réttan stað.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 10. Apr. 2007 14:35:12
eftir Sverrir
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 11. Apr. 2007 13:29:42
eftir Offi
Korter dagsins í dag var rökrétt framhald kortersins í gær. 4 göt með borvél og svo tyllti ég aflplöntunni (powerplant) á sinn stað, mældi og bar saman við cowlinguna. Allt í góðu þar.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 11. Apr. 2007 19:27:27
eftir kip
Þetta er farið að lúkka! Hlakka til að sjá tankinn fara í.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 12. Apr. 2007 12:52:17
eftir Offi
Góðir hálsar, velkomnir að viðtækjunum.
Til að valda nú hörðustu aðdáendum mínum ekki vonbrigðum ákvað ég að snúa mér rakleitt að bensíntanknum. Af fór mótorinn á nýjan leik og svo var mælt og reiknað og rissað og teiknað. Þar með lauk því korterinu. Skrýtið að manni finnst manni ekki verða neitt úr verki þegar maður er með mælitæki og blýant í hönd og þó er þetta mikilvægasti hlekkurinn í smíðinni.
Hins vegar finnst mér tankurinn vera full neðarlega, svona þegar ég sá myndina. Ég hugsa að ég þurfi að hækka hann upp um 1,5 cm. Þá vitum við efni morgundagsins.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 12. Apr. 2007 22:26:23
eftir Gaui
Athugaðu að miðlínan í tanknum ætti að vera í línu við miðlínu blöndungsins (í fullkomnum heimi). Það er lí lagi þó hann sé 1-2 sm ofar eða neðar og gerir ekkert til fyrir alla venjulega mótora.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 12. Apr. 2007 22:43:36
eftir Offi
Takk fyrir þetta. Það er sniðið ansi snyrtilega út í krossviðinn fyrir tanknum, svo hann smellpassar. Ég held hins vegar að það sé betra að setja foam undir hann og hækka hann þannig upp um 1,5 cm. Þá er hann á miðlínu. Það dregur líka úr víbringi og er líklega til bóta í alla staði.