Þakka þér fyrir, Böðvar!
Ég notaði 650D vélina mína með uppáhalds "walkaround" linsunni minni þessa dagana, Tamron 17-50 2.8. Ég notaði ekki grindina góðu, heldur var þetta handheld og í þetta sinn notaði ég bara innbyggða hljóðnemann. Hann er ágætur svona innandyra en um leið og út er komið verður maður helst að nota eitthvað annað.
Þetta er svo klippt í Openshot og eitthvað kom Audacity við sögu varðandi tónlistina
Kv,
Árni H
Smíðað á Grísará
Re: Smíðað á Grísará
Ég ætlaði einmitt að minnast á þetta líka, mjög fínt unnið og gott myndband. Ég þarf klárlega að kíkja á openshot, ég vissi ekki að það væri kominn open source hugbúnaður sem væri nothæfur í svona myndvinnslu
Re: Smíðað á Grísará
Fjanda flott félagar..alltaf gaman af vídeóunum frá Grísará.
Gísli Einar Sverrisson.MSV Patreksfirði
Hef ekki enn séð endirinn á þessari flugdellu.
Hef ekki enn séð endirinn á þessari flugdellu.
Re: Smíðað á Grísará
Smávegis frá því í gærkvöldi:
Re: Smíðað á Grísará
Það mætti halda að FO****INN sé í örum vexti, amk. virðast deplarnir hafa falið vel stærðina á tækinu hingað til.
Hálfur skúrinn takk so mikki!
Hálfur skúrinn takk so mikki!
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Flugmódelfélag Suðurnesja
Re: Smíðað á Grísará
[quote=lulli]Það mætti halda að FO****INN sé í örum vexti, amk. virðast deplarnir hafa falið vel stærðina á tækinu hingað til.
Hálfur skúrinn takk so mikki![/quote]
Hann stækkar með aldrinum Annars er hann ekki svo svakalega stór - hann er bara að teygja úr vængjunum á myndinni!
Hálfur skúrinn takk so mikki![/quote]
Hann stækkar með aldrinum Annars er hann ekki svo svakalega stór - hann er bara að teygja úr vængjunum á myndinni!
Re: Smíðað á Grísará
Spurningin sem er á allra vörum:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Smíðað á Grísará
[quote=Gaui, í Fokkerþræði,]Árni kvartaði sáran undan því að við hinir værum að ganga um og reka okkur óvart i hann á meðan hann málaði. Ég skil ekki af hverju og Mummi veit ekkert heldur.[/quote]
Þegar ég framkallaði myndirnar úr gemsanum kom skýringin á öllum þessum hristingi berlega í ljós. Það var auðvitað Grísarárnissinn síkáti að gera það sem hann gerir best - stríða og trufla, trufla og stríða.
Jólakveðja,
Mummi og Bubbah Jr.

Jón Stefánsson
Re: Smíðað á Grísará
Vanagangur á nýju ári að Grísará:
Gaui plankar og Mummi kemur seglum haganlega fyrir (hagar seglum) í vélarhlífinni.
Á meðan hélt ég kaffinu haldið heitu volgu.
Helmut og Barbie Braun gátu ekki setið aðgerðalaus þegar Gaui brá sér frá.
Sem sagt tíðindalaust á norðurvígstöðvunum