Síða 5 af 6

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 10. Júl. 2008 02:04:37
eftir Sverrir
Eins og kom fram á öðrum þræði þá komu Steinar og Bragi í heimsókn á þriðjudaginn var, þeir tóku nokkrar myndir af Katana og hér má sjá árangurinn.

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 17. Júl. 2008 00:29:16
eftir Sverrir
bandið góða var bara skammtímalausn en ég ákvað að nota útbúnað frá Aerobatic Concepts sem ég hafði á sínum tíma keypt á Su-31 en notaði ekki.
Gormarnir voru prufukeyrðir í kvöld og svínvirka, óhætt að mæla með þeim. :)

Mynd

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 1. Ágú. 2008 00:23:11
eftir Sverrir
Það var ekki falleg sjón sem mætti mér þegar flugum kvöldsins lauk, tankurinn hafði fengið anorexíukast og var við það að hverfa :(

Mynd

Öndunarslangan tók upp á þeirri vitleysu að reyna að vingast við pústið og brenndi sig frekar illa á því...

Mynd

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 1. Ágú. 2008 03:26:58
eftir Björn G Leifsson
Það er margur pitturinn að detta í :P

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 2. Ágú. 2008 23:40:55
eftir SteinarHugi
Hvað þola þessar slöngur mikinn hita?

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 3. Ágú. 2008 00:07:37
eftir Sverrir
Skv. framleiðanda þá er hámarks notkunarhiti 74°C.

Fann þetta skemmtilega skjal með helstu eiginleikum F-4040-A slöngunnar :)

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 12. Mar. 2009 20:08:59
eftir Sverrir
Seinni hluta sumars þá tók ég eftir því að farið var að síga á ógæfuhliðina hjá stélhjólinu. Frekar deigt í álinu eins og sjá má á hjólagafflinum og stýrisörmunum.

Ég hafði rekið augun í auglýsingar frá White Rose Engineering svo ég ákvað að nú væri eins gott tækifæri og hvað annað til að prófa vöruna þeirra. Ég pantaði svo eitt sett frá þeim síðasta haust og var að setja það í til að gera vélina klára fyrir komandi vertíð.

Hér sést hvernig stélhjólið hefur slitnað meira öðru megin sökum skekkjunnar.
Mynd

Stélfjöðrin kemur óboruð, svo ég boraði hann til að hún passaði í gömlu skrúfugötin.
Mynd

Og hér er þetta komið á sinn stað með gömlu góðu gormunum.
Mynd

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 12. Mar. 2009 20:46:03
eftir Haraldur
Hvað þola þessir tankar mikið sog?

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 12. Mar. 2009 21:21:40
eftir Sverrir
Meir en þetta greinilega, vona að ég eigi aldrei eftir að komast að því hvar mörkin liggja! Alla veganna ekki á flugi ;)

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstað: 12. Mar. 2009 22:41:56
eftir SteinarHugi
Þú ert ekkert að grínast með þetta sport Sverrir. Mjög fallegt afturhjól, vissulega. Hvernig væri að þú mundir gera einhverskonar prófíl þar sem maður gæti séð vélarnar þínar og tengingar í þræði um þær. Slíkt kæmi til dæmis í veg fyrir að Angel / Katana skandallinn endurtaki sig =)

kvSH