Síða 5 af 18

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 5. Ágú. 2010 00:38:43
eftir Gaui
Svo getur maður búið til feik þjóðarmerkingar:

BE-LJA
HR-OSS (að vísu frá Honduras)
RO-LLA

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 5. Ágú. 2010 06:12:27
eftir Agust
Ég sé að Gaui er alveg kýr skýr.

TF-UXI
TF-NKP (áburðartegundirnar í einkennisstöfum Þristsins).

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 10. Ágú. 2010 09:52:07
eftir Agust
Það gæti verið fróðlegt að fylgjast með hve einstakir hlutar Fjósamannsins reynast þungir:

Vængir án servóa:
Skrokkur með stéli en án servóa, tanks, mótors o.s.frv.:
Hjólastell:
Hjól:
Mótor:
Radíó:
Annað (?):
Með öllu, en án eldsneytis, tilbúin til flugtaks:

Væng og skrokk mætti vigta með og án filmu.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 10. Ágú. 2010 20:51:01
eftir Gaui
OK, Ágúst, ég á erfitt með að standast svona áskoranir:

Vélarhlíf: 154 gr
Hjólastell + dekk: 402 gr
Skrokkur + 2 servó + stélhjólastell + tankur (nenni ekki að taka þetta af aftur): 1985 gr
Stélkambur + bakuggi: 84 gr
Stélflötur: 148 gr
Hæðarstýri + hliðarstýri: 118 gr

Þetta sem ég er búinn með er núna samtals 2891 gr.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 21. Ágú. 2010 12:00:08
eftir Agust
Síðastliðinn mánudag vorum við feðgar á leið í átt að Aberdeen í Skotlandi frá skosku hálöndunum. Höfðum verið að skoða kastala og náttúruna, auk smá fjallgöngu á Tap o'Noth. Í bakaleiðinni, um það bið 50 km vestur af Aberdeen við ánna Dee, ókum við fram hjá svifflugvelli. Við stöldruðum auðvitað við og tókum nokkrar myndir þar sem "Farmhand" var að draga svifflugur á loft.

Myndir má stækka aðeins með því að smella á þær. Ragnar tók myndir á Canon 550D og ég á Canon Ixus 860.

http://www.deesideglidingclub.co.uk/about.php


Mynd

Takið eftir hljóðdeyfinum undir flugvélinni.


Mynd


Mynd


Mynd


Mynd


Mynd


Mynd

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 21. Ágú. 2010 19:19:50
eftir Kjartan
Sælir

Svona er ástandið á Fjósamanninum í Brekkusíðunni.
Aðeins búið að vera að dunda.

Mynd

Zenoah G-38, Passar vel undir húddið.

Mynd

Hér má svo sjá hvernig ég gekk frá lúgunni og auðvita notaði ég gamlan penna gorm.

Mynd

Næst er meiningin að saga niður Volvo stuðara en Þorsteinn er búin að finna slíkan.

Kjartan.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 21. Ágú. 2010 20:23:30
eftir Guðjón
rosalegt stélið á þessari vél!!

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 21. Ágú. 2010 22:20:11
eftir Kjartan
Virkar ekki eins stórt núna.

Mynd

Kjartan

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 22. Ágú. 2010 00:28:29
eftir Ágúst Borgþórsson
Myndarleg frá öllum sjónarhornum :)

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 22. Ágú. 2010 10:52:53
eftir Agust
Myndir af alls konar fjósamönnum við ýmis tækifæri: http://www.wattflyer.com/forums/showthread.php?t=42909