Síða 5 af 14
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 13. Apr. 2007 08:44:40
eftir Gaui
Í staðinn fyrir svamp (foam), þá skaltu gubba Fix-All á krossviðinn og síðan troða tankinum niður. Fix-All-ið dregur úr víbringi eins vel og hvaða svampur sem er og það heldur líka tankinum á sínum stað
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 13. Apr. 2007 12:06:25
eftir Björn G Leifsson
Ég hef undanfarið notað venjulegt baðherbergissílíkon til að leggja tankinn í . Það límir ekki eins fast eins og Fix-All en býr til mýkri "púða" og auðveldara að slíta tankinn lausan ef þarf (held ég
).
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 13. Apr. 2007 13:11:29
eftir Offi
Jæja... ég er hvorki með Fix-All né sílikon, svo ég sló tankmálum á frest. Ég er með allar hillur fullar af servóum og framlengingum og það þarf að komast á sinn stað. Ég ákvað að byrja á vængnum. Servó snúran var auðvitað allt of mjúk til að renna í gegnum rifin og að réttum stað. Þar sem það er bannað að deyja ráðalaus þá tók ég innbindivír sem ég rétti upp í snarhasti. Hann var bara alveg fullkominn í verkefnið, rann á áfangastað og þar með gat ég dregið í vænginn öðru megin. Meira náðist ekki, þar sem það tók lungann úr tímanum að búa til verkfærið.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 13:14:55
eftir Offi
Ég kláraði að draga í vænginn... en áttaði mig á að ég átti ekkert teip til að tryggja að snúrurnar hristist ekki í sundur, svo ég sneri mér aftur að tanknum. Ég hafði fundið þetta forláta frauð utan af einhverju tölvudótinu hérna og það setti ég undir tankinn og hækkaði hann aðeins upp. Svo tók ég bút af frauðinu og tróð niður með tanknum og voilá... þegar stúturinn er kominn í gegn um eldvegginn þá þarf kjarnorkustríð til að þessi tankur losni! Ef einhver ykkar á von á slíku, þá skal ég bæta við annað hvort Fix-All eða sílikoni.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 14:20:41
eftir Gaui
Offi
Það er eitt alveg öruggt í þessu lífi fyrir utan dauðann og skattana, það er að ef tankurinn getur hreyfts, upp eða afturábak, þá mun hann gera það um leið og þú ert búinn að fylla hann af eldsneyti og þá rofna slöngurnar rétt fyrir innan eldvegginn, allar nema sú sem liggur í hljóðkútinn. Hún heldur áfram að blása inn í tankinn þar til allt eldsneytið er komið í balsann í framenda vélarinnar. Ef þú getur skorðað tankinn betur, t.d. með teygjum ofan á hann og aftur fyrir hann, þá ertu orðinn nokkuð öruggur.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 14:22:44
eftir Gaui
[quote=Offi]en áttaði mig á að ég átti ekkert teip til að tryggja að snúrurnar hristist ekki í sundur[/quote]
Ég nota venjulega bara sláturgarn til að binda tengin saman. Þræddu það á milli víranna og bittu það saman með venjulegum klaufahnút. Tannþráður gerir sama gagn.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 14:39:46
eftir Offi
Ja, magnað. Það vill svo til að ég á hér 30 m rúllu af Jordan EasySlide Whitening tannþræði með Spearmint bragði. Sýnist hann verða sjálfkjörinn í þetta verk á morgun.
Ég er annars búinn að sjá út lausn með tankinn, svo hann verði nú kjarnorkuheldur að auki. Hrindi henni í framkvæmd þegar ég er búinn að gera gatið í eldvegginn.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 15:32:12
eftir Sverrir
Svo má líka skella herpihólk yfir tengin ef menn eiga von á kjarnorkustríði
Nú eða versla
servótengja klemmur af Ashtek.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 15:47:40
eftir einarak
er þetta stríðsflugvél?
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 16:02:04
eftir Offi
Ja... það var smá stríð um hana á heimilinu í fyrstu, en hún var tekin í sátt að lokum!