Síða 6 af 14
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 16. Apr. 2007 17:11:59
eftir kip
[quote=Offi]Jæja... ég er hvorki með Fix-All né sílikon, svo ég sló tankmálum á frest.[/quote]
U must get Fix-all, eftir að ég fjárfesti í kíttissprautu og fix-all losnaði ég við margt pirr, máski er maður einum og fljótur að beita sprautunni við öll tækifæri en það er bara eitthvað svo frábært þetta límkítti. Svo þarf maður að fara prófa þetta Hisol
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 17. Apr. 2007 13:04:12
eftir Offi
Það líður að því að ég fjárfesti í Fix-All... og megi það standa undir nafni.
Ég skellti servóunum í vænginn í dag.
Jordan EasySlide Whitening festi alla víra rammlega saman og það var þessi þægilega
Spearmint lykt af fingrunum á mér þegar ég var búinn. Herlegheit eru það. Ég er farinn að hlakka til að setja hin servóin í.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 17. Apr. 2007 13:13:56
eftir Gaui
Lúkkar kúl !
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 17. Apr. 2007 13:27:54
eftir kip
Spurning hvort mintusýran valdi rafleiðni sem veldur svo myndun spansgrænu í tengjunum sem að lokum endar með sambandsleysi og crashi!!!!
Ef þetta var GRÆN minta þá gæti komið spans-GRÆNA..
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 17. Apr. 2007 13:36:32
eftir Offi
Já, þú segir nokkuð. Ég verð að fylgjast vandlega með því hvort puttarnir detti nokkuð af mér af völdum þessarar hræðilegu sýru sem heitir myntusýra. Ef það gerist þá skipti ég þessu pottþétt út fyrir fyrsta flug. Þetta var Spearmint... það er kannski eitthvað tengt Britney SPEARs... hún er líka á sýru! Þá verður allt í ruglinu og vélin stjórnlaus frá fyrsta korteri! :/
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 18. Apr. 2007 13:12:29
eftir Offi
Jæja... síðasta korterið í þessari viku. Puttarnir eru enn á mér... og enginn tönn hefur dottið úr við notkun tannþráðsins, svo ég verð að vísa hræðsluáróðri kip útí hafsauga.
En ég er að ganga frá servóunum og því sem við á að éta. Þar steytti ég aldeilis á skeri. Plasthlífarnar utanum servóin voru alveg hráar. Ekki var búið að klippa þær út, svo það þurfti ég að gera. En það var ekki það versta. Það versta er að þær eru skjannahvítar. Svo hvítar að þær æpa á mann þarna á vængnum. Ég held samt að ég hafi þær þannig... ég meina... ég fer varla að standa í að lakka þetta. Það þarf að finna rétta litinn eða réttasta litinn o.s.frv. Nei, hvítt skal það vera.
Ég fór líka í það að tengja servó og hæðarstýri. Þá kom meira babb í flugvélina. Tengin sem teinarnir skrúfast inní eru barasta alltof víð, svo þetta bara rennur inn án þess að skrúfast. Þetta kallar á innkaup! Gleðilegt sumar, góða helgi og skál.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 18. Apr. 2007 13:23:08
eftir maggikri
Svakalega eru þetta orðin mörg korter hjá þér Offi. Smíðalinkurinn er orðinn næstum jafnstór og Super Cubinn hjá Guðjóni á Grísará og er hann nú að smíða hana frá grunni.
KV
MK
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 18. Apr. 2007 13:28:42
eftir Offi
Stærðin skiptir ekki máli, Maggi minn!
Ég hef gert það að skyldu minni að greina frá hverju korteri sem í vélina fer. Það er reyndar svo að manni verður oft ekki mikið úr verki á korteri, því maður verður að hætta í miðju kafi, ganga frá og alles... en ég held áfram þar til yfir lýkur... eða Sverrir lokar á þetta hjá mér!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 18. Apr. 2007 14:01:50
eftir Ingþór
Go Offi! Go Offi! Go Offi!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 18. Apr. 2007 14:45:27
eftir maggikri
Já þú ert flottur þarna Offi , þetta var bara "smá grín "comment. Taktu allann þann tíma sem þú þarft í þetta. Þetta var ekki neikvæð umræða enda er ég ekki þekktur fyrir það.
KV
MK