Síða 7 af 9

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 00:35:12
eftir Sverrir
Hvað varð eiginlega um allt plássið!? :/

Mynd

Mynd

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 09:25:41
eftir einarak
Allt í einu bara allt plássið?

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 12:58:03
eftir Spitfire
[quote=HjorturG]Jæja þá er það komið á hreint, ég mun mæta með fjóra útlenska stráka í eftirdragi! Ætlum að keyra á fimmtudaginn eftir vinnu og komum þá eitthvað seint, er einhver séns að fá að tjalda bara á flugvellinum eða því nágrenni? Ætlum bara að grilla okkur einhvern mat og fara að sofa. Nýta svo föstudaginn í túristabusiness, látrabjarg og rauðasand og eitthvað, flug á laugardeginum og vonandi mega þeir strákar líka vera með í grillveislunni![/quote]

Fyrsti póstur uppfærður, svarið er þar Hjörtur ;)

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 18:34:48
eftir Gauinn
[quote=Spitfire]Upphafspósturin hefur verið uppfærður varðandi gistingu á staðnum, en nú er komið að því, hverjir ætla að mæta, við þurfum að fá einhverja hausatölu fyrir grillveisluna sem verður í boði styrktaraðila okkar, semsagt hverjir verða með og hverjir eru svo óheppnir að missa af flugkomu ársins :D[/quote]
Ég er kominn´,,,,enginn enn á svæðinu??? Verð að sjálfsögðu með i grillinu, þangað til grilla ég bara við einhvern sandhólinn hér, sól, örlítil gola 9 stiga hiti, flott!!!

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 18:38:19
eftir Gauinn
[quote=Sverrir]Hvað varð eiginlega um allt plássið!? :/

https://frettavefur.net/Forum/uploadpic ... 3512_0.jpg

https://frettavefur.net/Forum/uploadpic ... 3512_1.jpg[/quote]
Plássið fór á undan þér vestur, sá það áðan hérna á flugvellinum, það hefur ekki nennt að bíða :-)

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 20:37:15
eftir Páll Ágúst
Hverjir fara með 15:45 ferjunni frá Stykkishólmi á morgun?

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 22:03:30
eftir Eysteinn
[quote=Páll Ágúst]Hverjir fara með 15:45 ferjunni frá Stykkishólmi á morgun?[/quote]

Ég ásamt einum farþega:) .

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 14. Jún. 2012 23:09:55
eftir Guðjón
Ég ásamt bílstjóra :)

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 15. Jún. 2012 03:24:05
eftir einarak
Jæja!! Klukkan er 3:22 og vara vélin er orðin klár fyrir Patro International. áætluð brottför 8:00 eða eftir 4:40 klst... Gott að ég er með einkabílstjóra :cool:

Re: Patreksfjörður International 2012

Póstað: 15. Jún. 2012 04:45:26
eftir Sverrir
Góða ferð! :)