Síða 7 af 14

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 18. Apr. 2007 14:50:18
eftir Offi
Ég veit það, félagi og ég tók þessu hreint ekki sem neikvæðni. En ég þarf engan tíma í þetta... bara korter! :D

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 21. Maí. 2007 14:13:52
eftir Offi
Hér var að berast áríðandi korter: Jæja... eftir alltof langa pásu drattaðist ég í gang í hádeginu. Ég boraði u.þ.b. gazilljón göt í eldvegginn þar til margt smátt gerði eitt stórt. Í gegnum það tróð ég bensíntanknum. Hann situr fastar en sjálfstæðisflokkur í ríkisstjórn og mun, líkt og sjálfstæðisflokkurinn, verða endalaus uppspretta afls og næringar um ókomna tíð.

Mynd

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 21. Maí. 2007 16:42:54
eftir maggikri
Nei Offi minn komin á stjá aftur. Ég er ekki frá því að þín hafi verið sárt saknað.
kv
MK

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 21. Maí. 2007 19:51:52
eftir Offi
Takk fyrir það. Það var gagnkvæmt. Ég fylgdist nú með ykkur, þó ég blaðraði ekki mikið. "Mæli þarft eða þegi" segir í Hávamálum. En nú ætla ég að reyna að klára Korterið í þessari lotu!

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 21. Maí. 2007 23:04:03
eftir Sverrir
[quote=Offi]..."Mæli þarft eða þegi" segir í Hávamálum.[/quote]
Usss, ef menn færu að fara eftir því á netinu þá myndi það rýrna ansi mikið :D

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 22. Maí. 2007 13:10:38
eftir Offi
Enn eitt korterið búið. Ég snéri mér að vængnum og setti þessar hræðilega hvítu hlífar yfir servóin. Á ég að fá mér blátt lakk og mála þetta? Ég er að spá í að það kannski borgi sig ekki, ef maður rústar þessu svo í fyrstu bunu! :|

Mynd

Mynd

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 22. Maí. 2007 13:17:24
eftir Sverrir
Blessaðu skelltu lit á þetta strax, ef þetta rústast í fyrstu ferð þá verður ekki mikið annað heilt á vélinni, þá er alveg eins gott að hún líti vel út á þeim myndum sem nást af fluginu ;)

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 22. Maí. 2007 13:20:53
eftir Offi
Að hún deyji ung og verði fallegt lík, semsagt? :o

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 22. Maí. 2007 14:43:24
eftir Sverrir
Flýgur hratt, deyr ung, verður fallegt lík :rolleyes:

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstað: 22. Maí. 2007 14:44:12
eftir Björn G Leifsson
Það eru til þeir sem aldrei setja límmiða og skraut á vélar fyrr en þær eru afmeyjaðar. Sennilega til þess að geta notað það á aðrar ef illa fer.

Ég hugsa nú að Humbrol-lakk dugi fínt á þetta ef það er þrifið með spritti fyrst.