Síða 8 af 18
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 10. Sep. 2010 16:24:27
eftir Gaui
Hún er stopp í augnablikinu þar sem Hafdís B hjá TNT.is er með efnið sem ég pantaði og neitar að láta það af hendi nema ég sendi henni upplýsingar um innihaldið, kostnað því samfara og annað álíka skemmtilegt. Ég vona að hún komi þessu norður eftir helgi og þá get ég farið að smíða vængi.
Í millitíðinni er Mummi búinn að setja saman handa mér flugmann í vélina:
Sá hefur náttúrlega fengið nafnið Bubba, enda er hann rauðháls af fyrstu gráðu = stór með lítinn heila og áhuga á kellingum og bjór (ekki endilega í þeirri röð). Hann hallar sér út um gluggann á módelinu til að sjá hvert hann er að fara:
Mummi er snilli
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 10. Sep. 2010 17:08:35
eftir Agust
Mummi er greinilega snillingur. Flugmaðurinn er sko ekta !
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 10. Sep. 2010 21:54:05
eftir lulli
Ahhahah... hann er nú aldeilis verklegur þessi Fjósi, það verður kominn Melaskógur þegar þessi
verður búinn að dreifa fræum.
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 11. Sep. 2010 11:33:23
eftir Björn G Leifsson
Tær snilld!!!
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 11. Sep. 2010 14:47:29
eftir Árni H
Eftirlitshundurinn Surtur að störfum:
Í fyrstu var Surtur skemmtilega efins um að Bubba væri treystandi fyrir Fjósamanninum en svo
var hann tekinn í sátt...
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 11. Sep. 2010 16:56:05
eftir jons
Ég þakka hlý orð
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 17. Sep. 2010 19:58:50
eftir Gaui
Hlutirnir eru farnir að taka við sér og allt að fara í gang aftur. Balsabunkinn og aukahlutirnir eru komnir frá Englandi:
Ég ætlaði að byrja á því að setja saman vængskinnið, en það er hvergi í leiðbeiningunum sagt hversu langt það þarf að vera. Ég tók því eina Cyparis spýtuna og raðaði rifjunum upp á hana eins og ég væri að smíða vænginn:
Þetta var svo þétt á, bæ þö vei, að ég gat tekið vænginn upp á bitanum og hann datt ekki í sundur.
Nú var lítið mál að bregða málbandinu á vænginn og hann reyndist vera rúmlega 101 sm á lengd:
Ég útbjó skurðarmáta með 45 gráðu halla til að skera endana af nokkrum balsaborðum svo ég gæti lengt þau:
Og svo var bara að líma nýja enda á til að fá lengdina úr 36 tommum upp í 110 sm.
Á morgun ætla ég að líma saman skinnið og byrja að raða vængnum á það. Fylgist með.
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 17. Sep. 2010 23:23:22
eftir Pétur Hjálmars
Takk fyrir að fá að fylgjast með.
Það er gaman að svona "vinnuþráðum" hjá smíðurum.
(ekki veit ég hvort þetta orð er til í íslensku).
Smiðkona er laghent kona.
Veit einhver hvað er SMILTI VINDUR ?
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 18. Sep. 2010 06:42:42
eftir Agust
Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn
Póstað: 18. Sep. 2010 08:48:03
eftir Gaui
[quote=Agust]Segið mér þið sem allt vitið:
Er cyparis = cypress = sýprus = grátviður ?[/quote]
Nú veit ég bara ekki nógu mikið. Það eina sem ég veit er að Cyparis er einhver tegund af sedrusviði. Hann er næstum gulur á litinn (sedrusviður er brúnn og á köflum rauður) og með afskaplega beinar og þéttar æðar. Á sama tíma er hann tiltölulega léttur. Hann á það sameiginlegt með sedrusviði að hafa mjög mikinn ilm -- það angar hjá mér skúrinn af þessu núna og mér líkar það alls ekki illa
Ég hef aldrei heyrt þetta orð grátviður nema í samsetningunni grátvíðir -- og þetta er ekki grátvíðir.