Síða 9 af 14
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 23. Maí. 2007 23:02:30
eftir Offi
Hmmm... man ekki neitt eftir plasttengjum í húsmæðrabók Helgu Sigurðar, en heilabúðingurinn var viðbjóður. Þó skal það tekið fram að rabbarbaravínið þar er SNILLD og ekkert annað! Veldur tímabundinni lömun í útlimum og hluta heilastarfseminnar, en ákaflega mikilli ánægju í þeim heilastöðvum sem enn virka. Ílát verða þó að vera lokuð, eða vínið verður á bragðið eins og Jötungrip og krefst viljastyrks að drekka! Been there, done that!
En ég skal hlíta þessum dómi yfir plastinu. Fæ mér nýja teina og full metal jacket í staðinn fyrir plastið!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 24. Maí. 2007 12:46:37
eftir Offi
Þá kemur annað vers og það er alveg eins... nefnilega aileron með plasti á...! Vængurinn er þá að mestu klár, nema hvað að ég á eftir að mála þetta hvíta dót þarna.
Fyrst þetta var alveg eins og í gær, þá nota ég sömu myndina, bara speglaða!
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 25. Maí. 2007 12:57:27
eftir Offi
Jæja, ég held bara áfram í servóvinnunni. Núna er það annað servóið fyrir hæðarstýrin. Skar og merkti og boraði og skrúfaði og merkti svo lengdina á teininum með plasttenginu á og beygði hann og klippti. Náði hins vegar ekki að setja control hornið á hæðarstýrið. Það kemur í næsta korteri.
Í dag ætla ég að fara með cowlinguna um allar jarðir og vita hvort ég finni ekki lit sem er svipaður þeim bláa.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 2. Jún. 2007 19:07:14
eftir Offi
Ég sveikst aðeins um í síðustu viku vegna anna og bætti mér það upp í dag. Þetta var hvort eð er verk sem ég get ekki gert í vinnunni. Ég tók korter á föstudag í að mæla út hvar mótorinn kemur út í gegnum cowlinguna. Svo merkti ég það sómasamlega og skar síðan úr cowlingunni með forláta hringskera. Virkaði fínt. Síðan opnaði ég cowlinguna að framan, svo ferskir vindar geti leikið um mótorinn. Afraksturinn er sýndur á meðfylgjandi mynd.
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 2. Jún. 2007 19:37:12
eftir Sverrir
Flott græja
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 2. Jún. 2007 19:46:50
eftir Björn G Leifsson
ég hef misst af þessari,,, fæst hún í VL-búðinni??
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 2. Jún. 2007 20:05:52
eftir Þórir T
Segi það sama, hvar náðirðu í þennan hringskera??
mbk
Tóti
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 2. Jún. 2007 22:56:00
eftir Offi
Ja... ég er búinn að dunda mér við að smíða kassagítar og ég fékk þennan skera með viðnum. Það var frá þessum ágæta aðila:
http://www.craft-supplies.co.uk/pdf/cra ... alogue.pdf
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 3. Jún. 2007 00:32:18
eftir Björn G Leifsson
Ég sé engan fljúgandi gítar þarna ????
Re: Edge 540T frá Will Hobby
Póstað: 3. Jún. 2007 12:59:37
eftir Þórir T
Góður! Er ekki komið smá challenge þar??? fyrst sláttuvélar og pizzakassar fljúga, ásamt fleira dóti, þá sýnist mér nokkuð auðvelt að smíða "gítar" sem flýgur
mbk
Tóti