Síða 10 af 18

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 25. Sep. 2010 17:52:37
eftir Árni H
Sko bara - Orustukindin bara skotgengur!

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 25. Sep. 2010 19:25:01
eftir Gaui
Stýrin verða sett á í fyrramálið og jafnvel að vængurinn verði settur saman -- hver veit :D
:cool:

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 26. Sep. 2010 18:23:49
eftir Gaui
Þá er annar vænghelmingurinn tilbúinn.

Ég setti lamirnar í stýrin: fimm í hallastýrið og þrjár í flapann, eftir að ég var búinn að forma þau til.

Mynd

Þá gat ég límt vængendann á og sett á hann þá kubba og spýtur sem eftir voru:

Mynd

Nú var komið að servóboxunum. Ég skar út það pláss sem ég taldi þurfa og þyljaði það innan með 3mm balsa. Þá verður til snyrtilegt box sem servóið situr í. Ég hugsa að ég máli það að innan með svipuðum lit og verður á vængnum þarna (blátt eða hvítt) áður en ég festi servóið í.

Mynd

Það síðasta sem ég gerði var að fitta miðjufestingarnar í. Ég ákvað að hafa vænginn í einu lagi og því verður hann bara límdur saman eins og segir í leiðbeiningunum.

Mynd

:cool:

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 26. Sep. 2010 18:48:04
eftir Haraldur
Á veggurinn á bak við stýrinn að vera svona opinn?
Fyllist þetta ekki bara af drullu?

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 26. Sep. 2010 21:21:50
eftir Björn G Leifsson
[quote=Haraldur]Á veggurinn á bak við stýrinn að vera svona opinn?
Fyllist þetta ekki bara af drullu?[/quote]
Klæðningin straujast yfir. Maður festir ekki lamirnar fyrr en búið að klæða.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 26. Sep. 2010 21:25:40
eftir Gaui
Haraldur

Það væri alveg hægt að klæða þetta með balsa, en það er alveg óþarfi, þar sem plastklæðningin kemur yfir þetta, eins og Doktorinn sagði.

Ég er nú búinn með báða vænghelminga og lími þá sjálfsagt saman annað kvöld :cool:

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 26. Sep. 2010 21:49:50
eftir Björn G Leifsson
[quote=Gaui]Haraldur

Það væri alveg hægt að klæða þetta með balsa, en það er alveg óþarfi, þar sem plastklæðningin kemur yfir þetta, eins og Doktorinn sagði.

Ég er nú búinn með báða vænghelminga og lími þá sjálfsagt saman annað kvöld :cool:[/quote]
Hafðirðu hugleitt að hafa þá í tvennu lagi?

Ég er alvarlega að íhuga það sjálfur.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 26. Sep. 2010 21:55:01
eftir Flugvelapabbi
Sæll Haraldur,
Eg held að strakarnir ætli ekki með þessar velar i florinn þo FJOSAMENN heiti, en það er gamann að fylgjast með þessu hja ykkur og en meiri verður skemmtunin i sumar þegar Fjosamennirnir fljuga um loftin bla.
Kv
Einar

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 27. Sep. 2010 13:31:48
eftir Gaui
Doktor

Ég velti því fyrir mér og bjó meira að segja til vængsperrur úr kolfíber til að prófa, en ákvað að það væri of mikið vesen. Vænghafið er ekki nema rétt rúmlega tveir metrar svo ég kem honum í alla mína bíla.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 27. Sep. 2010 21:53:48
eftir Gaui
Þá er ekki aftur snúið: ég límdi vænginn saman:

Mynd

Tveir metrar og tuttugu sentímetrar - með þeim stærri, en ekki óviðráðanlegt. Næsta mál á dagskrá er að setja tunguna í hann að framan og líam svo glerfíberborða á miðjuna. Eini borðinn sem ég á er úr samofnum kolfíber og glerfíber. Dálítið flott, en ætti að duga:

Mynd

Ég set inn meira þegar þetta er komið.

:cool: