Ég ætlaði að gera smíðaþráð um þessa en það tekur því hreinlega ekki. Það eru búnir að fara ca. 3 klukkutímar í hana og það á bara eftir að setja servó í fyrir hallastýrin og hæðarstýrið ásamt því að festa hraðastillinn og hjólaskálarnar. Smellpassar saman, vönduð vinnubrögð eins og öðrum vélum frá EF og svo er kominn þessi fíni flugmaður og mælaborð.
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 10. Jan. 2008 12:48:30
eftir Sverrir
Hér hefur glow conversion kittið verið notað og Saito 82 skellt í húddið.
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 10. Jan. 2008 16:57:25
eftir einarak
þetta er ss orginal rafmagns?
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 10. Jan. 2008 17:39:48
eftir Sverrir
Já
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 10. Jan. 2008 22:05:43
eftir Þórir T
Þetta er nokkuð settleg vél gamli, hvað er svona pakki að kosta marka kalla?
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 10. Jan. 2008 22:45:35
eftir Sverrir
Hann gæti slefað í sex stafa tölu með 2 batterípökkum, fer samt eftir því hvað þú verslar í hana, hef ekki tekið þetta nákvæmlega saman
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 11. Jan. 2008 15:05:33
eftir HjorturG
Hvernig væri þessi með saito 100?
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 11. Jan. 2008 16:38:27
eftir Sverrir
Power Extreme myndi ég halda
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 11. Jan. 2008 22:37:33
eftir HjorturG
*Borat rödd* I like.... *Borat rödd"
Re: 58" Extra 300 frá EF
Póstað: 11. Jan. 2008 23:34:11
eftir Björn G Leifsson
Þú meinar:
[borat] I likeeee.... [/borat]
BBcode-taggar sem spila þetta með Borat rödd eru því miður ekki til... eða hvað??
Þú gætir þó kóðað svoleiðis , er það ekki Sverrir??