Næstkomandi miðvikudagskvöld 2. júní klukkan 20:00 verður slegið upp grillveislu á Hamranesi þar sem grillaðar verða dýrindis pulsur (pylsur fyrir þá sem það vilja).
Gjaldkerinn mun sjá um að grilla ofan í mannskapinn af sinni alkunnu snilld og líklega verða einhverjar veigar í boði til að skola kræsingunum niður með.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Kveðja stjórnin.