Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 64

Frambrúnin komin á báða vængi og kubburinn fyrir vængendann kominn á annan þeirra.
20240423_090628.jpg
20240423_090628.jpg (124.81 KiB) Skoðað 328 sinnum
Hér sést hvað þarf að tálga úr kubbnum til að fá dæmigerðan Cessna vængenda sem lafir niður að aftan.
20240423_092845.jpg
20240423_092845.jpg (131.26 KiB) Skoðað 328 sinnum
Það er létt verk að pússa kubbinn niður að ofan, því þar er bara rúnnað.
20240423_104621.jpg
20240423_104621.jpg (132.16 KiB) Skoðað 328 sinnum
Það er meira verk að tálga hann að neðan. Byrjað á heflinum og allt heflað í burtu sem ekki þarf að vera þarna.
20240423_105427.jpg
20240423_105427.jpg (143.87 KiB) Skoðað 328 sinnum
Útskurðarhnífar eru gagnleg verkfæri þegar maður þarf að tálga balsa.
20240423_112134.jpg
20240423_112134.jpg (141.15 KiB) Skoðað 328 sinnum
Og hér er vængendinn út tálgaður og flottur. Nú þarf ég bara að passa mig að brjóta þetta ekki.
20240423_112948.jpg
20240423_112948.jpg (136.47 KiB) Skoðað 328 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 65

Þá eru báðir vængirnir tilbúnir og nú er bara að byrja að klæða þá með glerfíber.
20240424_113718.jpg
20240424_113718.jpg (138.32 KiB) Skoðað 310 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 66

Fyrsta umferð af glerfíber neðan á vængina. Ofan á fíbernum er svokallað PeelPly, sem á að ræna allri afgangs kvoðu úr fíbernum og setja á hann nánast eggslétt yfirborð.
20240425_104253.jpg
20240425_104253.jpg (136.8 KiB) Skoðað 292 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 67

Þá eru báðir vængir komnir með glerfíber skel bæði að ofan og neðan. Næsta skref er að pússa þetta slétt og sprauta með grunni. Því miður á ég bara kvart brúsa af grunni og hann fæst ekki í Víkurkaupum í rétta litnum, svo ég þarf að skreppa til Agureiris eftir helgina. Í millitíðinni datt mér í huga að athuga hvort ég kæmi vængjunum á skrokkinn. Það tókst eftir smá vesen. Cessnan er stór svona uppi á borði. Nú þarf ég bara að finna upp einhverja aðferð til að stilla stífurnar þannig að ég fái um 30 mm undir hvorn vængenda. Ég gæti mælt frá gólfinu, en ég held að það sé ekki lárétt :cry:
20240427_112117.jpg
20240427_112117.jpg (142.26 KiB) Skoðað 241 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 68

Vængirnir pússaðir lauslega með grófum pappír. Það er ekki hægt að pússa mikið, því maður sér ekki hversu mikið maður pússar og getur farið í gegnum glerið. Rauði 3M fyllirinn notaður á göt og rifur sem eru augljósar.
20240429_120214.jpg
20240429_120214.jpg (132.94 KiB) Skoðað 214 sinnum
Skrokkurinn fær núna vatnspússningu með P400 pappír og svo fer fyllir í galla sem nú koma í ljós. Ég límdi líka "hurð" á þessa hlið og á eftir að setja eins hinum megin. Svo koma plötuskil og hnoð, seinna.
20240429_113912.jpg
20240429_113912.jpg (131.41 KiB) Skoðað 214 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 69

Ég er í því að pússa skrokkinn með P400 pappír til að fá hann sléttan og fínan. Ég set líka fylliefni í allar misfellur sem ég finn. Á bakborðs hlið skrokksins (vinstri) er hurð á farangursgeymslu undir aftursætunum. Ég bjó þessa hurð til úr 0,3 mm ProSkin glerfíber efni og límdi hana á sinn stað. Það verður gaman að setja alls konar auka dót og plötuskil á skrokkinn.
20240501_104345.jpg
20240501_104345.jpg (124.6 KiB) Skoðað 152 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 70

Búinn að pússa stélflötinn og setja fylliefni í misfellur. Næsta skref er að festa stélið á.
20240503_095619.jpg
20240503_095619.jpg (134.26 KiB) Skoðað 137 sinnum
Byrjaður að leggja niður plötuskil. Það er gert með því að setja niður tvær til þrjár umferðir af límbandi og síðan draga fylliefnið á.
20240503_104301.jpg
20240503_104301.jpg (140.39 KiB) Skoðað 137 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 71

Plötuskilin á skrokknum er mörg og margvísleg. Það þarf að leggja þau til skiptis upp og niður og fram og aftur. Það er ekki hægt að leggja þau öll í einu. Fyllirinn þarf að þorna og svo er hann pússaður niður að límbandinu.
20240504_105706.jpg
20240504_105706.jpg (135.61 KiB) Skoðað 83 sinnum
Hér sést hryggurinn sem verður eftir þegar límbandið er fjarlægt. Hér sést líka að ef límbandið grípur of fast og er of lengi á, áður en það er tekið af, þá fylgja flögur af grunni og jafnvel glerfíber með. Maður þarf líka að passa sig að losa það rétt af svo að svona komi ekki fyrir. Næstu skil verða gerð með gulu málaralímbandi neðst og svo þrem lögum af bláu bílateipi.
20240506_100515.jpg
20240506_100515.jpg (134.68 KiB) Skoðað 83 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3654
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 72

Allar plötulínur eru komnar á skrokkinn. Hér er hægri hliðin:
20240507_115035.jpg
20240507_115035.jpg (126.14 KiB) Skoðað 40 sinnum
Og hér er sú vinstri:
20240507_115140.jpg
20240507_115140.jpg (132.24 KiB) Skoðað 40 sinnum
Ég fékk sendingu í dag frá Premier Pilots i Kaliforníu. Þeir eru með svakalegt úrval af flugmönnum í 1/4 skala (bæði karla og konur) og sendu mér einn sem fær að sitja í flugmanns sætinu í TF-FRU. Hann er, því miður, ekkert líkur Ómari okkar, en vel gerður og snyrtilegur til fara. Með honum fylgja öryggisbelti, derhúfa, sólgleraugu og heyrnartól.
20240507_120716.jpg
20240507_120716.jpg (128.31 KiB) Skoðað 40 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11455
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Sverrir »

Sko til, bróðir hans Badda! 8-)

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Svara