Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Árni H
Póstar: 1592
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Árni H »

Verðum við ekki að þvívíddarprenta nokkrar hænur í skala? :)
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

Það væri ekki verra, Árni. Skalinn er 1:4.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 102

Það er ótrúkegt að maður hamast í marga klukkutíma að reikna út hvað á að mála og hvað ekki og maska allt aftur á bak og áfram. Svo tekur það bara 10 mínútur að sprauta málningunni á og rífa allt límbandið af aftur. Annars er þetta bara flottur blár litur.
20240706_110331.jpg
20240706_110331.jpg (136.16 KiB) Skoðað 3056 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 103

Ein umferð af hvítu á skrokkinn.
20240708_100328.jpg
20240708_100328.jpg (133.77 KiB) Skoðað 3036 sinnum
Textinn á vængendanum. Ég skoðaði myndir af FRUnni vandlega og komst að því að Arial er líkast þessum stöfum, svo ég prentaði þetta á sérstakan pappír sem ég get losað með vatni og límt á vængendann. Það er allt hægt nú til dags.
20240708_102216.jpg
20240708_102216.jpg (136.39 KiB) Skoðað 3036 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 104

Ég lagði FRÚna á hægri hliðina og festi vinstri vænginn á hana. Svo merkti ég staðsetningu og lag feringanna við stífurnar.
20240709_102050.jpg
20240709_102050.jpg (133.91 KiB) Skoðað 3009 sinnum
Ég setti rör yfir hausinn á skrúfunni og límdi það fast.
20240709_102058.jpg
20240709_102058.jpg (136.49 KiB) Skoðað 3009 sinnum
Bláa límbandið á að gefa lag feringarinnar þegar ég steypi það upp. Ég setti líka límband á festinguna sjálfa til að hún festist ekki innan í feringunni. Svo makaði ég Isopon P-38 á stífuna og skrokkinn þar sem feringin er. Ég gerði þetta í nokkrum atrennum.
20240709_104031.jpg
20240709_104031.jpg (138.58 KiB) Skoðað 3009 sinnum
Þegar fyllirinn var orðinn harður gat ég losað stífuna af og pússað hann til þar til réttu lagi var náð. Nú er bara að setja rauðan fylli á þetta og svo fínpússa og grunna.
20240709_120204.jpg
20240709_120204.jpg (133.7 KiB) Skoðað 3009 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 105

Nú þarf að ganga frá stífufestingunum undir vængina. En til þess þarf ég að leggja FRÚna á bakið. :lol:
20240712_100641.jpg
20240712_100641.jpg (137.3 KiB) Skoðað 2911 sinnum
Hér er ég búinn að merkja feringuna og setja rör fyrir skrúfjárnið. Ég átti ekki nægilegt af kopar rörum, svo ég setti plaströr í staðinn. Ég uppgötvaði núna að feringin er ekki nógu stór, svo ég bætti við hana út-megin við stífuna.
20240712_100654.jpg
20240712_100654.jpg (141.29 KiB) Skoðað 2911 sinnum
Svo sullaði ég P-38 á stífuna í nokkrum atrennum. Ég ætla að leyfa þessu að harðna til morguns áður en ég byrja að pússa það til.
20240712_110301.jpg
20240712_110301.jpg (144.16 KiB) Skoðað 2911 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 106

Það er fering utan um hjólastellið upp við skrokkinn og ég byrjaði á því að merkja hvar hún ætti að vera.
20240715_092153.jpg
20240715_092153.jpg (125.37 KiB) Skoðað 2537 sinnum
Svo setti ég límband (P-38 festist eiginlega ekki við þetta gula límband) og sullaði svo P-38 á staðinn. Spjöldin tvö eru þarna til að viðhalda samskeytunum á lokinu yfir stellið.
20240715_094702.jpg
20240715_094702.jpg (136.7 KiB) Skoðað 2537 sinnum
Og svo er hellingur af pússeríi. Sem betur fer á ég pússitromlu á Proxxon handfræsarann og hún kom sér vel þarna.
20240715_105010.jpg
20240715_105010.jpg (140.25 KiB) Skoðað 2537 sinnum
Hér er feringin neðan frá.
20240715_105016.jpg
20240715_105016.jpg (142.86 KiB) Skoðað 2537 sinnum
Þegar allt var orðið sæmilega hart og ég búinn að pússa það mesta, þá gat ég losað feringarnar frá. Annar hluti þeirra límist svo við hjólastellið og litli parturinn festist á lokið. Þannig getur hjólastellið gengið til í harkalegum lendingum án þess að brjóta feringuna.
20240715_115159.jpg
20240715_115159.jpg (139.73 KiB) Skoðað 2537 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 107

Hér er ég búinn að líma feringarnar á stellið og svo taka stellið af. Hér vantar smá fylliefni og grunn og svo má mála.
20240717_094017.jpg
20240717_094017.jpg (134.31 KiB) Skoðað 2453 sinnum
Búinn að sprauta með hvítu.
20240718_110645.jpg
20240718_110645.jpg (133.42 KiB) Skoðað 2453 sinnum
Þetta er lokið yfir (undir) hjólastellið þar sem það festist á skrokkinn. Feringarnar eru komnar á endana og búið að sprauta smá.
20240718_110702.jpg
20240718_110702.jpg (146.19 KiB) Skoðað 2453 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 108

Ég er búinn að liggja í flensu og kvefpest í rúma viku og hef tæplega getað staðið undir sjálfum mér, hvað þá smíðað fugmódel (þetta er ekki COVID -- ég gáði). Nú ætla ég að reyna að halda áfram og það næsta í röðinni er að setja mótorinn á, tankinn í og tengja þetta allt.

Ég fékk 47 mm langar stultur sem þeir félagar í Slippnum renndu fyrir mig og það kostaði mikið bras að koma gadaróm fyrir í boxinu, aðallega vegna þess að ég er ekki með mjög nettar hendur. Það var eins gott að ég var ekki búinn að setja framrúðuna í.
20240729_104448.jpg
20240729_104448.jpg (134.12 KiB) Skoðað 2061 sinni
Og svo fór mótorinn á. Fyrir þá sem vilja vita, þá er þetta RCGF Stinger 30T.
20240729_110603.jpg
20240729_110603.jpg (139.58 KiB) Skoðað 2061 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3751
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 109

Orkan hjá mér er ekki enn komin á fullt, svo það var lítið gert á verkstæðinu í morgun. Ég boraði heilmikið gat á eldvegginn fyrir slöngur og leiðslur og skrúfaði kveikjuna á hliðina á mótorboxinu. Svo seti ég rör og tilheyrandi í bensíntankinn og kom honum fyrir á sínum stað. Nú vantar mig bara bensínslöngur.
20240730_095951.jpg
20240730_095951.jpg (133.8 KiB) Skoðað 2008 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara