Síða 1 af 3

Re: Super Decathlon

Póstað: 12. Okt. 2008 23:49:36
eftir Ágúst Borgþórsson
Ég dreif í að hefja smíði á kitti sem ég keypti fyrir tveimur árum á Ebay fyrir slikk :D Þetta kitt er frá Dynaflite

SPECIFICATIONS
Stock Number: DYFA3035
Wingspan:89 in (2261 mm)
Wing Area: 1237 in² (80 dm²)
Weight:16-18 lb (7258-8165 g)
Fuselage Length: 69 in (1753 mm)
Requires: 2-stroke 1.08-1.8 cu in (17.7-29.5 cc) or 4-stroke 1.20-1.60 cu in (20-26 cc) glow engine
or 25-35 cc gasoline engine
Mynd Mynd

Re: Super Decathlon

Póstað: 13. Okt. 2008 00:50:20
eftir Sverrir
Glæsilegt, alltaf gaman að sjá ný smíðaverkefni :)

Re: Super Decathlon

Póstað: 13. Okt. 2008 06:12:56
eftir maggikri
Flottur kv MK

Re: Super Decathlon

Póstað: 13. Okt. 2008 18:16:18
eftir Ágúst Borgþórsson
Myndin sem hefði kanski átt að vera nr. 1
Mynd
Ég geri eina breitingu á vélini, set á hana flapsa

Re: Super Decathlon

Póstað: 27. Okt. 2008 17:08:44
eftir Ágúst Borgþórsson
Áfram skal haldið spítu fyrir spítu. Það eru engin læti hérna megin :) Mynd

Þetta er alveg sæmilega beint er það ekki?

Mynd Mynd Mynd

Hérna ákvað ég að setja flapsa á vélina og sagaði endana af rifjunum Mynd Mynd

Þennan fallega boga fæ ég með því að bleyta balsan
og pinna hann svo niður á undirlagið
Þetta eru 5 lög af 1/16"x3/8"

Mynd Mynd Mynd

Re: Super Decathlon

Póstað: 2. Nóv. 2008 15:40:15
eftir Ágúst Borgþórsson
Þetta er svona að taka á sig mynd og styttist í pússivinnuna

Mynd
Mynd

Vængirnir eru alveg að verða tilbúnir til pússningar

Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd

Re: Super Decathlon

Póstað: 2. Nóv. 2008 19:36:52
eftir Gaui
Áfram Gústi -- látum balsarykið fljuga !

Re: Super Decathlon

Póstað: 12. Nóv. 2008 22:50:03
eftir Ágúst Borgþórsson
Það er farið að þyrlast upp rykið og þá nebbla fæ ég kvef.
En áfram skal haldið.


Mynd

Þarna undir (eða yfir) þessu loki verða servoin fyrir afturhlutann.

Mynd Mynd Mynd

Þá er skrokkurinn tilbúinn að mestu til klæðningar
og ég búinn að leggja hann til hliðar í bili.

Mynd

Vængendarnir sagaðir út með sögini sem er búin að bíða lengi eftir verkefni.
Það kemur sér stundum vel að vera með verkfæradellu :rolleyes:

Mynd

Re: Super Decathlon

Póstað: 13. Nóv. 2008 14:41:51
eftir Árni H
Þetta er flott hjá þér - gaman að fylgjast með þessu.

Re: Super Decathlon

Póstað: 7. Feb. 2009 23:31:14
eftir Ágúst Borgþórsson
Ég hef ekki verið neitt voða duglegur við að halda smíða þræðinum við :cool:
en samt haldið sæmilega áfram við smíðarnar og er að nálgast lokastig =D

Mynd

Mér finnst guli liturinn voðalega flottur, en ég held að hún sjáist betur
svona eldrauð og það verður líka hvítt í henni.

Mynd
Mynd