![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248060.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248076.jpg)
Þetta var nú bara hádegishlé úr vinnunni en í virkilegu blíðskaparveðri.
En.....
Í dag, nei gær(17. jan) var Tumi strokinn austur fyrir fjall(sennilega með vænginn sinn) greip ég Jón Gunnar með mér út á Hamranesvöll og lét hann kasta vængnum fyrir mig( sem gekk frekar illa í byrjun ) en tókst betur síðar. Ég var búinn að setja nýja skrúfu á....., en honum tókst ekki að brjóta hana.....
Og reyndar skall á stórhríð með halglélum oþh. Alla vega var JG settur á myndavélina þegar vængurinn fauk fram og til baka og týndist öðruhvoru í éljum.
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248538.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248565.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248585.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248603.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248620.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232248634.jpg)
Meðan élin þéttust og þéttust og puttarnir urðu loppnari og vængurinn nálgaðist óðum að týnast í næsta éli, hringdi einmitt einn af þessu landsb*!*$*%*&*/*=*pakki og sagði að suður með sjó væri logn og blíða og sól og ég held hann hafi sagt 25° hiti. Sem sé farinn að hljóma eins og Akureyringur eða eitthvað þaðan af verra. Sem kemur einmitt að fyrirsögn þessa pistils. Ég held að hér á landi sé einhver mafía (með höfuðstöðvar fyrir norðan)( og kanski útibú á Suðurnesjum) sem reynir að telja okkur höfuðborgarbúunum að veðrið sé vont hér í þessu musteri hámenningarinnar......?????
En þar sem við vorum ekki búnir að frétta af útibúinu á suðurnesjum og erum multi félagsmenn, trúðum við þessu og stukkum upp í bílinn og ókum sem leið lá suður með sjó. Eftir því sem við komum sunnar (vestar?) jók í vindinn og élin urðu þéttari og við sannfærðari um áðurnefnda mafíu og bölvuðum hraustlega að vestfirskum sið(þar er sennilega engin mafía, alla vega aldrei talað um gott veður), settum í fjórhjóladrifið og þegar við vorum um það bil að missa sjónar á vegnum, birti allt í einu til. Við sáum veginn og við ókum í blíðskaparvegi og sól, jæja alla vega ekki í stórhríð inn á Arnarvöll.
Jón Gunnar gat meira að segja kastað vængnum upp á við( en ekki í jörðina)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232249960.jpg)
Þarna þurfti ég að takka á öllu mínu til að gefa honum ekki það sem kallað er "Close shave"....
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232250315.jpg)
Síðan flugum við eins og berserkir.....
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232250040.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232250056.jpg)
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2008/1232250069.jpg)
Eftir þessa upplifun eða lífreynslu er ég farinn að treysta landsby.... betur og hættur að kalla það pakk.
Það gæti jafnvel endað með því að ég fari að trúa því að það sé alltaf sól fyrir norðan og jafnvel að það sé kanski engin veðurmafía fyrir norðan eða á suðurnesjunum.
Lifið heil
Gunni Binni