Síða 1 af 1

Re: Orkuveita Hamraness??

Póstað: 19. Nóv. 2005 14:26:21
eftir Björn G Leifsson
Mér datt nú í hug gamla flugstöðvar-rafstöðin þegar ég sá að minn kæri vinnustaður er að selja fullt af vararafstöðvum. Hér væri kannski hægt að fá fína stöð fyrir slikk. En svo þegar nánar er að gáð þá er þetta meira og minna ógangfært og úr se´r gengið... ojæja.

Mynd Mynd

Re: Orkuveita Hamraness??

Póstað: 19. Nóv. 2005 15:37:01
eftir Sverrir
Það væri nú gaman að vita hvað módel þessi International er :D

Spurning um að kaupa þetta og stofna raforkufyrirtæki sem þjónustar Hamranes og nágrenni og selja svo OR eða HS með hagnaði.

Re: Orkuveita Hamraness??

Póstað: 19. Nóv. 2005 23:51:28
eftir Gaui
Ég er með eina tveggja sílindra 6KW Lister ljósavél sem ég er alveg tilbúinn að selja fyrir slikk. Það fylgir henni töflukassi. Það eina sem vantar er að drösla henni suður og setja á hana dísilolíu. Hún er vel gangfær og framleiðir rafmagn.

Ég get farið út í skúr á morgun og tekið mynd af vélinni ef einhver hefur áhuga.

Re: Orkuveita Hamraness??

Póstað: 20. Nóv. 2005 13:49:36
eftir Agust
Myndin hans Björns minnir mig á það þegar við Kristján Antonsson fórum á Kleppsspítalann. Við vorum reyndar með fullu viti í það skiptið.
Erindið var að skoða forláta ljósvél sem þar var til sölu. Okkur þótti hún óþarflega stór fyrir Hamranes, og varð endirinn sá að keypt var Lister rafstöð á sveitabæ í Kjósinni.

Ég minni á umræður um OH hér: http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=254 Skrolla aðeins niður...

Re: Orkuveita Hamraness??

Póstað: 23. Nóv. 2005 22:56:25
eftir Björn G Leifsson
Vona að enginn sé að misskilja mig... ég var ekki að leggja til að Þytur færi í svona fjárfestingu :) Sá bara tenginguna við umræðuna sem Ágúst minnti á hér fyrir ofan...

Re: Orkuveita Hamraness??

Póstað: 24. Nóv. 2005 01:24:53
eftir Sverrir
Nei ætli hún dugi ekki ágætlega rafstöðin sem er fyrir. Ekki eins og við séum í stórum aðgerðum þarna ;)