Síða 1 af 3

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 12:29:03
eftir kip
Við norðanmenn erum gríðalega spenntir að vita hverjir ætla að mæta norður á Flugkomuna 8. ágúst :D :D :D

Hin árlega Flugkoma Flugmódelfélags Akureyrar verður haldin á Melgerðismelum laugardaginn 8. ágúst við flugstöð Þórunnar Hyrnu.

Þar verður gestum og gangandi seldar veitingar frá 10 -17, kaffi og meðlæti og ætti fæstir að láta þennan viðburð fram hjá sér fara. Þennan dag tjöldum við flugmódelmenn öllu til og drögum fram flest allt sem flýgur. Flug byrjar klukkan 09:00.

Flogið verður flugmódelum af öllum gerðum, frá tvíþekjum úr fyrra stríði til nútíma þota sem fljúga hraðar en hljóðið.

Um kvöldið verður grillað við Hyrnuna og verður rukkað fyrir það á staðnum og/eða seldir matarmiðar yfir daginn.

Þráðlaust net er á staðnum þannig að menn geta komið með ferðatölvur og tengst Internetinu.

Mynd

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 12:31:23
eftir Páll Ágúst
Ég væri alveg til í að koma en ég er annarstaðar akkúrat þessa helgi :(

Hvaða þota er þetta á mynginni hér að ofan og hver á hana?

kv. Páll

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 12:33:18
eftir kip
Þotan á myndinni er reyndar útlensk þar sem ég fann ekki mynd af þotunni hans Sverris í tíma :D ;-)

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 13:06:39
eftir Helgi Helgason
Kip er þessi þota ekki komin með íslenskan ríkisborgararétt og hefur búsetu í Mosfellsbæ, er þetta ekki þotan sem komi með Ali hingað?

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 15:02:36
eftir Steinar
Ég verð amk e-h á ferðinni. Er í bústað á Illugastöðum þessa helgi og kíki pottþétt. Veit samt ekki hvort ég get troðið modeli með í skottið.

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 15:49:24
eftir Sverrir
Við mætum alla veganna fimm. :)

[quote=Helgi Helgason]Kip er þessi þota ekki komin með íslenskan ríkisborgararétt og hefur búsetu í Mosfellsbæ, er þetta ekki þotan sem komi með Ali hingað?[/quote]
Auglýsingamyndin er af F-16 en þotan hans Einars er stærri útgáfa af gömlu vélinni minni og lítur einhvern veginn svona út.
Mynd

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 16:03:56
eftir Páll Ágúst
Og hvað fer svona vél hratt?

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 18:03:03
eftir Sverrir
Hraðar en hljóðið skv. auglýsingunni...

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 18:23:49
eftir Eysteinn
[quote=kip]Við norðanmenn erum gríðalega spenntir að vita hverjir ætla að mæta norður á Flugkomuna 8. ágúst :D :D :D[/quote]
Ég + tveir = 3.

Kveðja,
Eysteinn.

Re: Könnun

Póstað: 28. Júl. 2009 20:56:42
eftir Björn G Leifsson
Ég og langlíklegast báðir strákarnir. Hjörtur er að græja sína vél. Á einhver 23x8 propp, ef sá sem við pöntuðum kemst ekki í tæka tíð ?