Re: Dualsky Breeze Pro
Póstað: 31. Okt. 2009 18:33:25
Er ekki upplagt að skella hér einum smíðaþræði fyrir eitt stykki innivél. Ég nennti ekki að bíða eftir Ameríkubiðpóstinum svo ég pantaði þessa vél frá Ali og co. á mánudaginn var og náði í hana í gær. Hefði klárað hana í gærkvöldi ef APC hefði ekki verið að læðupúkast með nýja gerð af spaða þannig að menn þurfa ekki að rýma til í dagatalinu ef þeir ætla að setja saman innivél.
Fyrir valinu varð Breeze Pro frá Dualsky, þeir leggja einnig til mótor og hraðastilli.
Helstu tölur
Vænghaf: 78cm
Lengd: 85 cm
Þyngd: 130-165 grömm
Þetta kom vel pakkað inn.
Nauðsynlegt að hafa þetta, móttakari og rafhlöður komu frá HK fyrir nokkrum vikum. Takið eftir APC spaðanum og hvernig hann liggur í pakkanum.
Hér sést svo innihaldið úr pakkanum.
Tape-ið góða.
Smádótið.
Byrjum á að líma vængina á skrokkinn.
Svo er skorið upp í skrokkinn fyrir carbonstyrkingum sem liggja eftir frambrún vængsins.
Einnig er skorið upp í vængendann.
Svo eru hallastýrin og hæðarstýrið lamað með Blenderm. Heil rönd að ofan. Passið að hafa smá bil á milli flatanna.
Þrír minni bútar að neðan.
Ég þurfti aðeins að taka af skrokknum til að fá nóga hreyfingu á hæðarstýrið.
Fergjum vængina á meðan við stífum þá af með carbonstöngum.
Hlutar hjólastellsins.
Styrkingar fyrir leggina.
Leggirnir komnir á sinn stað.
Ég vék frá leiðbeiningunum og rúnaði hliðarstýrið og lamaði eins og hina stýrifletina.
Hér er búið að líma stjórnhornin á stýrifletina.
Hér sjást servóin á sínum stað. Hliðar-, hæðar- og hallastýri. Bæði hliðar- og hæðarstýri eru pull-pull.
Skellti servótengi á mótorinn og hraðastillinn, ef mig skyldi langa í öflugri mótor í framtíðinni. Ég hefði getað sparað mér þessa „aukaþyngd“ með því að lóða vírana saman.
Hér sést ný gerð af spaða frá APC.
Eina „skemmdin“ sem á módelinu, svo sem ekki slæmt miðað við hversu vel tókst að beygla pakkann í póstinum.
Mótorinn á sínum stað með spaðanum sem Gústi lánaði mér, takk Gústi minn.
Eini gallinn er sá að hann er 2 grömmum þyngri en APC spaðinn en það hlítur að reddast.
Móttakarinn á sínum stað, hér sjást einnig götin sem ég gerði til að koma servósnúrunum á einn stað.
Virðist vera þokkalega hornrétt.
Hér sjást stífingar á stélinu og stélskíðið, hér vék ég líka örlítið frá leiðbeiningunum og skar ofan í skrokkinn fyrir skíðinu.
Hér sést hraðastillirinn og minni rafhlöðupakkinn, hér er vélin 162 grömm með öllu sem er innan viðmiðunarmarka.
Hér sést hvar stærri pakkinn þarf að fara, hér er vélin 178 grömm.
Og hér er gripurinn tilbúinn til flugs! Ég þurfti að sitja á honum stóra mínum að fara ekki að fljúga henni inni í stofu en hún fékk að voka aðeins með smá stuðningi.
Einhverjar fleiri myndir má sjá í myndasafninu ef menn hafa áhuga.