Síða 1 af 1
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 18. Jan. 2010 22:04:57
eftir Gunnarb
Jæja, ég var rétt í þessu að rífa upp úr kössum þrjár vélar sem voru að koma til mín frá Svíþjóð, einn spitfire fyrir mig og síðan sitthvor IL-10, önnur fyrir mig og hin fyrir Gunna Binna. Vélarnar eru eins og aðrar aircombat vélar í skalanum 1/12 og eru smíðaðar af Lasse nokkrum Lundell. Þessir strákar sem eru að keppa í dogfight smíða sér yfirleitt haug af módelum fyrir hvert season og þegar svona raðsmíði er í gangi eru þeir enga stund að skera efni í nokkrar extra vélar sem fæst keypt fyrir litinn pening.
svona mæta sumir í keppnir:
Aðrir selja meira að segja hálfsmíðuð módelkit eða eins og Lasse gerir, alveg klárar vélar.
Fyrir þá sem hafa áhuga er slóðin hjá köllunum sem eru að selja teikningar eða kit :
http://aircombat.se/Byggrummet/Ritningar--Kit/
Vélarnar sem ég var að fá eru glettilega vel smíðaðar, sérstaklega með tilliti til þess að þetta er bara frauðplast og brúnn umbóðapappír (og efniskostnaður pr. vél því afskaplega lítill)
Hér er mynd af IL-10 sem Lasse smíðar:
Smelli inn mynd af spitfire við tækifæri
Gunnar
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 19. Jan. 2010 08:59:08
eftir Árni H
Aha - á að fara í combat? Góð hugmynd...
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 19. Jan. 2010 09:40:11
eftir Gunnarb
Jamm, núna tökum við þetta föstum tökum
Ég veit að þarna úti hafa þeir leyft mönnum að nota hvaða vélar sem er þegar í Dogfight á kynningum, svona meðan menn eru að finna út hvort þeir fíli þetta. Síðan hafa Þeir smellt stuttum "dogfight" kafla inn í aðra dagsskrá (t.d. flugkomur), þannig að þeir sem hafa áhuga geti mátað þetta og þetta er auðvitað frábær skemmtun á að horfa.
Ég er búinn að viða að mér einhverju af teikningum af "foam-vélum" sem hægt er að smíða úr vatnsheldu einangrunarplasti, þannig að ef einhver hefur áhuga er bara að láta vita ...
-G
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 27. Feb. 2010 13:03:28
eftir Árni H
Sælir!
Hvernig gengur með combatpælingarnar? Eigum við að smella okkur í smáloftorrustu á Melunum í sumar?
Kv,
Árni Hrólfur
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 14. Mar. 2010 11:07:29
eftir Gunnarb
Sorrí Árni, sá ekki póstinn frá þér fyrr en nú. Klárt mál, ég er sko til í combat anytime
Það var eiginlega tilviljun að ég féll fyrir þessum vélum, þetta var það eina sem ég gat flogið uppi í sumarbústað þar sem hvergi fannst slegið tún til að taka á loft/lenda með stærri vélunum. Þessum rellum getur maður lent nánast hvar sem er og þeim er jú kastað í loftið. Ekki skemmir fyrir að það er ekkert mál að fljúga þeim í hávaða roki (eins og verður oft af sólfarsvindum sunnanlands á sumrin). Ég er kominn með nokkuð skemmtilegt safn af þessu (Mig-3, IL-10, Spitfire, Hawker Hurricane, F6F Hellcat, P51-Mustang). Hinsvegar er karakterinn nokkuð misjafn milli véla, þannig að ef maður ætlar að verða almennilega flinkur í þessu ætti maður sennilega að halda sig við sömu vélina sem mest.
-G
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 15. Mar. 2010 21:29:36
eftir Árni H
Mér líst vel á að taka slaginn í combat í sumar. Gremlininn er fyrir .25 - .40 mótor. Ég set auðvitað .40 mótor í minn fyrst Gaui setti .25 í sinn
Hvaða mótora ætlið þið að nota?
Svo er bara vandamálið með streemera. Í hinu myrka landi Bretlandi nota menn gjarnar vídeóspólur en það hefur þann kost (eða ókost) að maður verður að klippa borðann með proppinum. Það þýðir ekki bara að fljúga í gegnum borðann eins og þegar menn nota bréfborða af einhverju tagi.
Ætli maður fórni ekki einhverri gamalli pornóspólu í þetta með vorinu
Kv,
Árni H
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 16. Mar. 2010 23:01:48
eftir Gunnarb
Þessir skunkar vinir mínir í Svíaríki nota pappírsborða. Ég skal vera búinn að nálgast þetta áður en á hólminn er komið. Vélarnar mínar eru ýmist gerðar fyrir .15 eða .25 mótora þar sem þetta eru allt 1/12 skalamódel. Kosturinn við pappírinn er að það er hægt að klippa þá með vængjunum. Mætum helíllir í sumar í
-G
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 17. Mar. 2010 09:14:51
eftir Gaui
Annar kostur við pappírinn er að hann brotnar niður í náttúrunni, en pornóið verður enn á staðnum við heimsendi
Re: Spitfire og IL-10
Póstað: 18. Mar. 2010 12:22:55
eftir Árni H
[quote=Gaui]Annar kostur við pappírinn er að hann brotnar niður í náttúrunni, en pornóið verður enn á staðnum við heimsendi
[/quote]
Pfff - hver leggur ekki á sig smágönguferð út í náttúruna að tína saman pornó?