CML Ultimate - designed by Dave Patrick

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: CML Ultimate - designed by Dave Patrick

Póstur eftir Sverrir »

Fínasta arf tvíþekja sem fór saman á glettilega fáum tímum. Vélinni var svo reynsluflogið á mánudaginn var og svarar hún nokkuð vel og lætur bara prýðilega í loftinu en er frekar vökul eins og gefur að skilja. Hægt að nálgast módelið hjá ModelExpress bæði tilbúið til flugs og svo ósamsett í arf búningi.

Fyrst var stélið límt á og lendingarbúnaður skrúfaður á og gengið frá dekkjum og hlífum.
Mynd

Því næst stjórnfletirnir, bæði hliðarstýri og hæðarstýri er með toga-toga(e. pull-pull) uppsetningu.
Mynd

Hér má sjá fráganginn við servóinn, smá maus var að koma vírunum fyrir hæðarstýrið á sinn stað því þeir þræðast í gegnum 2mm göt sem eru neðst á einum formernum, en skv. leiðbeiningunum er ekki búið að fullklæða skrokkinn þegar það er gert og þar var aukabútur af klæðningu straujaður yfir þegar búið var að ganga frá vírunum en í staðinn þurfti að sýna heimsmeistaratakta í fingrafimi.
Mynd

OS 70 fjórgengismótor var notaður í vélina.
Mynd

Hér er búið að skera úr vélarhlífinni fyrir honum.
Mynd

Servó fyrir hallastýrin voru límd og skrúfuð innan á servó lokið.
Mynd

Hér má sjá bensíntank, batterý og móttkara.
Mynd

Vængstýfa og tenging á milli hallastýranna.
Mynd

Tada...
Mynd

Glæsilegt módel og þarna sést einnig eini límmiðinn sem fylgdi með settinu.
Mynd


Hægt er að sjá fleiri myndir í Myndasafni flugmódelmanna
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: CML Ultimate - designed by Dave Patrick

Póstur eftir Björn G Leifsson »

er verið að freistam manns???

:D
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: CML Ultimate - designed by Dave Patrick

Póstur eftir Sverrir »

Ætli það ekki, það þýðir alla veganna ekki að sýna Hirti neitt undir 25% þessa dagana ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
HjorturG
Póstar: 188
Skráður: 15. Apr. 2005 17:01:03

Re: CML Ultimate - designed by Dave Patrick

Póstur eftir HjorturG »

:d
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: CML Ultimate - designed by Dave Patrick

Póstur eftir Agust »

Ég er kanski að misskilja. Þetta er líklega ekki sama vél og þessi Dave Patrick: http://www.davepatrickmodels.com/dpm/ul ... timate.htm
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: CML Ultimate - designed by Dave Patrick

Póstur eftir Sverrir »

Nei ekki sú sama, þetta er örlítið minni vél.
Icelandic Volcano Yeti
Svara