Síða 1 af 7

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 7. Sep. 2011 21:31:13
eftir Gaui
Við hér fyrir norðan áætlum að bjóða upp á námskeið í módelsmíði og síðan flugi fyrir alla sem vilja læra svoleiðis. Módelið sem við hyggjumst nota er Sky 40, sem Tony Nijhuis hannaði og kom sem teikning í tveim RCM&E blöðum árið 2006.

Mynd

Nú er hægt að fá þetta módel sem spýtur í kassa frá SLEC fyrir sæmilega viðráðanlegt verð.

Til að vita hvernig þetta módel dettur saman, þá ætla ég að setja eitt saman. Ég er þegar búinn að panta það og býst við að fá það eftir nokkra daga. Þegar þar að kemur, þá ætla ég að Vídeóblogga alla samsetninguna öðrum til skemmtunar og vonandi einnig til gagns og gleði.

Fyrsta bloggið er komið, og það er um smíðabrettið. Njótið:



:cool:

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 7. Sep. 2011 23:07:58
eftir Messarinn
Góður

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 8. Sep. 2011 00:28:45
eftir einarak
Brilliant! Það er gott að fá innblástur og smíðaborðið er afbragðs hugmynd. Þetta trétex er þetta einhvað sem fæst í næstu húsó/býkó í viðráðanlegum einingum þ.e. ekki eingöngu í 240x120 einsog svo margt annað efni?

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 8. Sep. 2011 08:53:55
eftir Gaui
Nei, Einar, því miður er bara hægt að kaupa trétex í heilum plötun, því það skemmir sagir (líklega tjaran í því þegar hún hitnar) og þeir vilja ekki saga það. Það er, hins vegar, ódýrt , platan sem ég keypti og á eftir að duga mér lengi, kostaði rétt rúmlega 3000 kall í Byko. Það var einu sinni til hreint trétex, en þeir virðast vera hættir að selja það (???). Það er hægt að skera i texið með dúkahníf og brjóta það svo það passi inn í bíl. Svo bara sagar maður það í höndum með gamalli sög til að það passi ofan á smíðabrettið.

:cool:

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 8. Sep. 2011 14:59:53
eftir Björn G Leifsson
Ég keypti plötu af hreinu trétexi fyrir nokkrum árum og setti hluta á svona smíðaplötu og afganginn festi ég innan á bílskúrshurðina. Þar þjónar hún til að hengja teikningar á og vera bakland fyrir dartpílumarkið. Ekkert verra að nota tjörutex á sama hátt.

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 8. Sep. 2011 20:28:10
eftir Jónas J
Góður Mynd

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 9. Sep. 2011 17:48:17
eftir Gaui
Kassinn er kominn og hægt að kíkja í hann -- enda stóðst ég ekki mátið og gat ekki beðið. Það eru nú ekki jólin nema einu sinni í viku :D



:cool:

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 9. Sep. 2011 18:44:10
eftir Spitfire
Skemmtilegt framtak Gaui, rifjar upp þá gömlu góðu daga þegar ég púslaði saman fyrsta kittinu í módelsmiðjunni, Sig Kadet LT-40 sem einnig hefur það á afrekaskránni að hafa farið í lengsta ferðalag flugmódels frá Patreksfirði :)

Mynd

Mynd

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 9. Sep. 2011 18:46:04
eftir Messarinn
Þetta er orðið spennandi. þú nefnir kannski hvað Sky 40 kostar kominn í hús ?

Re: SKY 40 fyrir byjendur

Póstað: 11. Sep. 2011 00:56:01
eftir Gaui
Þá ætti smíðin að fara að geta byrjað -- eða hvað?



:cool: