Síða 1 af 1
Re: Flotflugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 18. Apr. 2004 23:29:51
eftir Sverrir
Það væri gaman að heyra frá þeim sem hafa hugsað sér að kíkja út í Sandvík núna í maí og taka þátt. Það hefur verið góð mæting undanfarin ár og má því gera ráð fyrir að svo verði áfram.
Re: Flotflugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 19. Apr. 2004 01:23:25
eftir Böðvar
Ég ætla að fara að huga að því að setja flotin aftur undir Big lift vélina mína. Zenoah 23 cc mótorinn er í lagi núna og miklu kraftmeiri en í fyrra, en þá brunaði vélin eftir Hvaleyrarvatni á flotunum en hafði sig ekki á loft, hafði ekki nægt afl. þetta var daginn fyrir flotmótið í fyrra.
Re: Flotflugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 19. Apr. 2004 02:09:15
eftir Sverrir
Þá skil ég að lítið hafi sést af þér í fyrra
Re: Flotflugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 23. Maí. 2004 18:53:02
eftir Sverrir
Jæja þá er góður dagur að kveldi kominn og myndir komnar inn á vefsíðu Flugmódelfélags Suðurnesja.
http://modelflug.net/?page=myndir&id=16
Voru menn ekki almennt sáttir við daginn og aðstöðuna?
Re: Flotflugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 25. Maí. 2004 11:55:59
eftir Böðvar
Þetta var frábært mót, Big lift kom mjög vel út á flotunum. Það var nokkuð hvast framan af og var ekki nokkur leið að snúa módelinu að landi eftir lendingu en með því að drepa á mótor og láta það reka að landi var það í lagi.
Það er meiriháttar gaman að sjá hvað myndatökum hefur farið fram, þetta eru flottar myndir og vel teknar á vatnamótinu, gæðin eru frábær.
Re: Flotflugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 25. Maí. 2004 14:55:26
eftir Sverrir
Samt eru þetta bara lággæða útgáfur sem ég gerði fyrir vefinn.
Ég skal henda til þín diski með alvöru gæðum, hef grun um að þú hefðir áhuga á útprentun og jafnvel stækkunum á sumum af myndunum af Big Lift