Skundað var út á Arnarvöll í hádeginu í dag þar sem allt stefndi í að gærdagurinn væri að endurtaka sig veðurfarslega séð. Það gekk líka eftir og var mikið flogið næstu klukkutímana! Guðjón hélt áfram í flugkennslu, Ingólfur frumflaug Elan og formaðurinn tók góðar rispur.
Frábær dagur í alla staði og komin smá vorhugur í menn!
Fleiri myndir koma svo inn með kvöldinu.
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 1. Apr. 2012 19:13:23
eftir Jónas J
Ha Ha Ha 1.Apríl ha ha ha................
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 1. Apr. 2012 20:08:54
eftir Fridrik
Glæsilegt til hamingju Ingó
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 1. Apr. 2012 20:27:38
eftir INE
Takk Frikki!
Mjög gaman en talsverður hjartsláttur, þurr háls og sveittir lófar sem er jú partur af fjörinu
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 1. Apr. 2012 21:21:50
eftir Sverrir
[quote=Jónas J]Ha Ha Ha 1.Apríl ha ha ha................[/quote]
Mikið rétt, gott að sjá að þú ert búinn að læra dagana...
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 1. Apr. 2012 21:38:09
eftir Sverrir
Ingólfur og Elan klár í loftið.
Formaður á leik.
Aircore klár í næst túr.
Aircore í kennsluflugi.
Þeir eru alltaf tveir, meistari og lærlingur!
Colt götuskráður 2012.
Tveir (g)óðir.
Elan er rennileg vél.
Og svo var það jómfrúarflugið á Arnarvelli.
Flott lending hjá kallinum!
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 2. Apr. 2012 08:16:05
eftir Jónas J
Til hamingju Ingólfur og glæsileg vél þarna á ferð
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 2. Apr. 2012 12:03:54
eftir lulli
Þið eruð magnaðir!
Velkominn í hóp hinna "flognu" Guðjón Þú ert á grænni grein á Aircore-nýlendu Íslands með einvala gengi snillinga í kringum þig
Til lukku með daginn Ingólfur, Þetta er alveg ægifögur þota og greinilegt að Apríl er sko tekinn til að "massaþað"
Það vakti athyggli mína hvað brautarbrunið getur verið stutt ,mv. svo hægan vind (ef einhver var)
Kv. Lúlli
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 2. Apr. 2012 12:09:49
eftir maggikri
Þetta eru vanir menn og "overpoweraðar vélar"
Lúlli ! styttist ekki í þig með svipað tæki í brautarbrun?
kv
MK
Re: Arnarvöllur - 1.apríl 2012
Póstað: 2. Apr. 2012 15:32:23
eftir Haraldur
Við erum með Mottu Mars, Hönnunar Mars og því ekki Þotu Mars líka. Eða Þotu Maí?