Síða 1 af 1
Re: 23.08.2006 - Fréttavefsmótið
Póstað: 23. Ágú. 2006 09:12:47
eftir Sverrir
Til stendur að halda Fréttavefsmótið nk. laugardag 26.ágúst á Eyrarbakkaflugvelli og mun það hefjast kl.13. Eins og menn hafa eflaust tekið eftir þá hefur veðurspágáfa veðurfræðinga vorra ekki verið upp á marga fiska síðustu daga. Því eru menn beðnir um að fylgjast vel með hér á Fréttavefnum næstu daga svo engin fari nú villur vega um næstu helgi.
Re: 23.08.2006 - Fréttavefsmótið
Póstað: 23. Ágú. 2006 23:47:16
eftir Björn G Leifsson
Ég var að frétta að það væri flugsýning í Rþeykjavík þennan laugardag. Veit einhver um tímasetningar á því???
Re: 23.08.2006 - Fréttavefsmótið
Póstað: 24. Ágú. 2006 00:00:50
eftir Sverrir
Hún á að byrja kl.13, Flugmálafélagið stendur fyrir þessari sýningu eins og undanfarin ár.
Re: 23.08.2006 - Fréttavefsmótið
Póstað: 24. Ágú. 2006 07:57:57
eftir Þórir T
Samt alltaf dáldið merkilegt, að þessar sýningar eru bara auglýstar korteri fyrr.... eða svo gott sem....
Re: 23.08.2006 - Fréttavefsmótið
Póstað: 24. Ágú. 2006 08:35:04
eftir Þórir T
Langar til að setja smá á blað varðandi næstu helgi, þeas Fréttavefsmótið.
Meiningin var að halda það síðustu helgi, en þökk sé spáfræðingum veðurstofunar þá var tekin ákvörðun um frestun til komandi helgar.
Eins og staðan er núna er sú spá ekki heldur mjög björt, en við skulum ekki örvænta fyrr en nær dregur.
Nokkrir þyrlumenn ætla að slást í hópinn og eins hef ég orðið var við gríðarmikinn áhuga hjá flugvélamódelmönnum nær og fjær.
Mjög gott væri ef menn gætu skotið pósti á
akk@simnet.is með áætlaðan fjölda manna í kringum sig.
En ítrekum aftur að fylgjast vel með hér á Fréttavefnum með gangi mála...
mbk
Þórir T
Formaður Flugmódelfélagsins Smástundar.
892-3957