Síða 1 af 3
Re: Gáta?
Póstað: 8. Des. 2006 19:22:56
eftir Björn G Leifsson
Bara svona til að halda okkur við efnið
Eins og sumir vita þá er ég með dellu fyrir B24 Liberator. Er alltaf að finna meira og meira um þá.
Í dag fann ég svolítið skrítið. Hér kemur mynd af plastmódeli af raunverulegri vél sem var notuð í stríðinu stóra:
og spurninginn er: hvers vegna í ósköpunum var þessi vél máluð í svona eh...skrípalitum?
Hvert var hlutverk hennar?
Re: Gáta?
Póstað: 8. Des. 2006 20:43:03
eftir HjorturG
Umm... target practise?????
Re: Gáta?
Póstað: 8. Des. 2006 21:46:34
eftir Helgi Helgason
Svona til að taka þátt í gátunni þá giska ég á að hlutverk hennar hafi verði eldsneytis flutningur. Mér dettur þetta í hug vegna stútana sem eru þarna framalega á tríninu.
Re: Gáta?
Póstað: 8. Des. 2006 21:54:49
eftir Agust
Hefur ekki flugvélin bara verið "ground-uð" eins og sagt er. Liturinn er nefnilega alveg eins og á jarðbindivír.
Re: Gáta?
Póstað: 8. Des. 2006 22:49:49
eftir Offi
[quote=Agust]Hefur ekki flugvélin bara verið "ground-uð" eins og sagt er. Liturinn er nefnilega alveg eins og á jarðbindivír.[/quote]

Hann hefur kannski teipað hana saman með gamla góða gulgræna teipinu og svo klórar Dr. Med. Björn von Cowling sér í hausnum yfir þessu!

Re: Gáta?
Póstað: 9. Des. 2006 06:08:25
eftir maggikri
Þetta er Waterbomber fyrir slökkvistarf
kv
MK
Re: Gáta?
Póstað: 9. Des. 2006 08:35:19
eftir Björn G Leifsson
Bíð enn eftir réttu svari

Re: Gáta?
Póstað: 9. Des. 2006 09:58:44
eftir Gaui
Flugvélar sem voru notaðar til að draga æfingaskotmörk voru oft málaðar mjög gassalega og ég giska á að það hafi verið hlutverk þessarar vélar: að draga skotmark sem flugmenn æfðu sig í að skjóta á.
Re: Gáta?
Póstað: 9. Des. 2006 11:43:47
eftir Björn G Leifsson
[quote=Gaui]Flugvélar sem voru notaðar til að draga æfingaskotmörk voru oft málaðar mjög gassalega og ég giska á að það hafi verið hlutverk þessarar vélar: að draga skotmark sem flugmenn æfðu sig í að skjóta á.[/quote]
Ekki þessar
Re: Gáta?
Póstað: 9. Des. 2006 12:18:21
eftir kip
1. Voru þetta merkingar svo að vinir og samherjar skytu þær ekki niður einhversstaðar?
2. Varla hefur þessi vél verið einver guide fyrir aðrar? niii
3. Fannst þeim þetta ekki bara helvíti flott en þjónaði engum tilgangi?

neinei
4. Voru þær notaðar sem "færanleg merking" á svæðum
5. ég er uppiskroppa með ógáfulegar uppástungur
6. google er ekkert að gagnst mér

en ég fann flottar capitureaðar b24 hér
http://capturedplanes.tripod.com/b-24.htm