Síða 1 af 1

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 9. Des. 2006 20:04:38
eftir maggikri
Falleg vél, ekki satt?
Mynd

Mynd

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 9. Des. 2006 20:15:42
eftir Sverrir
TO og PP.

Svo maður skemmi nú ekki fjörið fyrir hinum ;)

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 9. Des. 2006 21:38:52
eftir Offi
Damn... ef ég hefði nú bara greiniforritin frá þeim í CSI, þá gæti ég lesið á fjárans skiltin. Efri vélin er með framenda sem er nauðalíkur Corsair... eflaust með Pratt & Whitney mótor. Það staðsetur hana á árabilinu 1940 - 1955 eða svo. Útlitið á vélinni setur hana í mínum huga í kringum 1950.

Neðri vélin er ... jæja, ég ætla ekki að vera að segja of mikið... þetta var alveg rétt hjá Sverri... TO og PP. :D:D:D

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 9. Des. 2006 21:40:30
eftir Sverrir
Alla veganna til hamingju með póst númer 5.000 og þinn 30. :cool:

Þú ert alla veganna nógu heitur með fyrri vélina ;)

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 9. Des. 2006 22:01:17
eftir Pitts boy
Hee. hef ekki grænan um þessar Flugvélar en snjóbíllinn í bakgrunninum á efri myndini er af Canadískri gerð og þeir voru kallaðir SnowCatt að mig minnir :) Segi bara svona :)

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 10. Des. 2006 03:22:19
eftir teddi
er þetta ekki DHC-3 Single Otter..
eins og bretarnir notuðu í suðurpólsreisunum sínum í gamla daga?

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 10. Des. 2006 06:36:16
eftir maggikri
[quote=teddi]er þetta ekki DHC-3 Single Otter..
eins og bretarnir notuðu í suðurpólsreisunum sínum í gamla daga?[/quote]
Mikið rétt Teddi, þú ert kominn með efri vélina rétta. Þá vantar nafnið á hinni, gæti verið eitthvað erfiðara sú vél er ekki fyrir sjónum manna á hverjum degi.

kv
MK

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 10. Des. 2006 11:03:38
eftir Pétur
Sælir,

Var að skoða myndirnar af þessum vélum sem þú varst að spá í hvað hétu.
Ég er ekki viss hvað sú efri heitir en tveggja hreyfla vélin er bresk, held ég.
Hún heitir C(PR).1. Hunting Pembroke.
http://www.britishaircraft.co.uk/aircra ... php?ID=512

kveðja,

Pétur

Re: Önnur gáta hvað heita þessar vélar

Póstað: 10. Des. 2006 15:02:05
eftir Sverrir
Flottir, neðri er Percival Pembroke en Hunting nafnið kemur held ég frá Svíum en þeir neyddust til að kaupa nokkrar svona þegar þeir keyptu Hawker Hunter af Bretum á sjötta ártugnum. Bretar notuðu tækifærið og nánast kröfðust þess að Svíar þyrftu, vegna viðskiptastefnu, að loka kaupunum með því að taka nokkrar vélar sem seldust ekki jafn vel, Svíarnir notuðu þá tækifærið og fengu sér nokkrar flutningavélar, nokkrum var svo breytt fyrir önnur störf, ELINT, VIP flutninga, sjúkraflug o.fl.

Mynd