Síða 1 af 3

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 31. Mar. 2005 14:20:37
eftir Sverrir
Þá eru loksins komnar í hús myndir af glæsigripnum. Kannski að Guðjón segi okkur eitthvað nánar frá vélinni og hver fyrirmyndin verður.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 31. Mar. 2005 20:46:20
eftir mundi
Frábært Guðjón.
meiriháttar að menn skuli opna svona smíðadagbækurnar sínar og leyfa okkur hinum að fylgjast með. Þessi vél verður örugglega falleg í líkingu við TF-DÝR.
Þessi vefur er stórgott framtak af hálfu Sverris og vekur greinilega mikla athygli.
Eru ekki fleiri tilbúnir til að opinbera sín smíðaborð, ég veit að þau eru nokkur til.
Ég vona að þeir sem þegar eru komnir inn á smíðavefinn verði duglegir að senda myndir eftir því sem smíðin þróast.
Ég lofa að gera það !

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 7. Maí. 2005 19:47:43
eftir Sverrir
Komnar nokkrar myndir í viðbót.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 25. Mar. 2006 22:54:11
eftir Þórir T
mig langar í nýjar myndir Gaui K. !

mbk
Tóti

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 27. Jan. 2007 20:35:11
eftir Gaui K
Jæja hér gerst hlutirnir hægt miða við suma allavega :)
En núna er ég að dunda svo að eitthvað er nú í gangi. Mynd
Ég var að hugsa um að hafa stélið losanlegt þannig að það verði hægt að losa það af í flutningum ekki alveg ákveðið ennþá samt.
næsta mál er bara að dúka vængi og ................................
meira seinna fljótlega ....................

kv, Gaui K.
Mynd
Mynd
Mynd

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 28. Jan. 2007 19:12:08
eftir Gaui
Gaui

Hvaða teikningar/kit/ annað ertu að nota?

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 28. Jan. 2007 22:40:10
eftir Gaui K
[quote=Gaui]Gaui

Hvaða teikningar/kit/ annað ertu að nota?[/quote]
Þetta er teikning sem Skjöldur Lét mig hafa fyrir ja ég held 4árum síðan.Þetta er Wendell Hostetler plan. scale 30% ekki 33% eins og ég var víst búin að segja áður.
En það er rétt að koma því að ég hef mikið notast við myndir bæði frá þér Gaui og Birni það er búið að hjálpa mér gríðarlega núna síðustu misserin í þessu (:
Já og þetta er svona kanski svolítið made in sveitin stíll á þessu en ef þetta klárast fyrir sumarið þá er ég bra sáttur ;)

kv,Gaui K.

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 29. Jan. 2007 03:27:33
eftir Björn G Leifsson
Svalt... !

Svona til samanburðar eru súperköbbarnir sem við Gaui erum að smíða (hann að smíða, ég að rembast :) ) í 26.3% .

Mig grunar að flugkomurnar í sumar verði með "ferskum" blæ. Ég verð að hafa mig allan við svo mín komist eitthvað áfram og geti verið með...

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 23. Feb. 2007 18:04:05
eftir Gaui K
Jæja búin að dúka vængi og eitthvað meira og myndir alveg á leiðinni.But, er að spá í að sprauta cowlingu með plastmálningu.Ég var búinn að sjá einhverstaðar þar sem menn voru að gera þetta voru það ekki þið Akureyringarnir?Hvernig tókst það er þetta bara ekki í lagi?það er allavega mun ódýrari aðferð ef þetta er hægt hverni blönduðuð þið málninguna?

kv,Gaui K.

Re: 30% Piper Cub, Wendell Hostetler, sem Guðjón Kjartansson smíðar

Póstað: 23. Feb. 2007 19:41:02
eftir Sverrir
Glæsilegt, verður gaman að sjá gripinn.

Líttu á > http://flugmodel.is/greinar/Herlitir/sprautun.html