Síða 1 af 2
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 25. Apr. 2014 00:16:11
eftir Sverrir
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 25. Apr. 2014 18:48:21
eftir einarak
Hvílík snilld, maður er bara orðlaus. Þarna var landsliðið að skila sínu. Aftur til lukku Örn, það verður gaman að sjá hana með þessum kjarnakljúf
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 25. Apr. 2014 20:54:47
eftir Sverrir
[quote=einarak]Þarna var landsliðið að skila sínu.[/quote]
Já, sumir fengu að vinna fyrir kaupinu sínu!
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 25. Apr. 2014 23:23:08
eftir maggikri
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 26. Apr. 2014 11:50:45
eftir Örn Ingólfsson
[quote=Sverrir][quote=einarak]Þarna var landsliðið að skila sínu.[/quote]
Já, sumir fengu að vinna fyrir kaupinu sínu!
[/quote]
Haha já "sumir" fengu að lenda Yak með 3D hreyfingar dauðans, mótor sem gekk eins og tussa og öfug hallastýri...
"Sumir" voru svo sannarlega þyngdar sinnar virði í gulli.
Takk Sverrir takk.
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 26. Apr. 2014 12:12:19
eftir Björn G Leifsson
[quote]...öfug hallastýri...[/quote]
Komst Sverrir nokkuð í stýringuna? :rolleyes:
Neh, í alvöru? Það er risavaxið afrek að get tekið á loft, flogið OG lent á hjólunum með öfug hallastýri. Tek ofan fyrir þeim sem það geta.
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 26. Apr. 2014 14:04:11
eftir Örn Ingólfsson
hehe ég er í raun að þakka Sverri fyrir að hafa lent fyrir mig eftir að ég var búin að hringsóla í nokkra stund með öfug hallastýrir.
Hann Sverrir hafði ekkert með þetta reverse að gera enda var ég að fikkta í þessu öllusaman kvöldið áður.
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 26. Apr. 2014 16:10:17
eftir Björn G Leifsson
Góð regla að temja sér: Hvert einasta flugtak byrjar á því að gá hvort stýrin hreyfast og hvort þau hreyfast í rétta átt. Líka þó það sé fimmta flugtak dagsins. Gera það að "Kæk".
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 26. Apr. 2014 16:33:48
eftir Sverrir
[quote=Örn Ingólfsson]Takk Sverrir takk.[/quote]
Sjálfsagt mál kallinn minn, þó það hafi alls ekki verið sjálfgefið að koma henni heilli niður. Ótrúlega vont að þurfa að berjast á móti vöðvaminninu og vandist það ekki á þessum stutta tíma, sem var þó furðu lengi að líða í minningunni. Keyptirðu ekki örugglega lottómiða!?
[quote=Björn G Leifsson]Góð regla að temja sér: Hvert einasta flugtak byrjar á því að gá hvort stýrin hreyfast og hvort þau hreyfast í rétta átt. Líka þó það sé fimmta flugtak dagsins. Gera það að "Kæk".[/quote]
Það má bara alls ekki verða þannig "kækur" að menn sjái bara stýrin hreyfast eins og Björn segir, þau verða að hreyfast rétt!!! Síðast í fyrra fór einn reynslubolti þannig í loftið svo menn verða að vera á tánum, alltaf!
Re: Arnarvöllur - 24.apríl 2014
Póstað: 26. Apr. 2014 19:38:03
eftir Örn Ingólfsson
Keypti reyndar ekki lottómiða, ég lýt á lottó sem auka skatt á fátækafólkið.
Varðandi prefligth, þá geri ég það fyrir hvert flug en ekki bara eftir samsettnigu, en það virðist eitthvað hafa klikkað í þetta skiptið...