Síða 1 af 2
Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 9. Feb. 2007 19:09:36
eftir Sverrir
Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 9. Feb. 2007 20:17:20
eftir einarak
ég gerði nú tilraun á Hamranesinu áðan, en það var bölvaður vindstrengur þar í gegn. Svo sat hún bara föst í snjónum ofan á allt... ég gafst upp þegar hún tók Selfoss stílinn á þetta og steiptist á trínið í flugtaki.
Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 9. Feb. 2007 21:13:21
eftir maggikri
Hvernig vél varstu með Einar
kv
MK
Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 9. Feb. 2007 22:54:26
eftir einarak
Þessa Cessnu 182, hún slapp sem betur fer algerlega óskemd úr biltunni
Þær eiga það greinlega til þessar týpur að taka kollhnís, þvi vélin sem tók kollhnísinn á selfossi var víst cessna 180

Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 10. Feb. 2007 01:41:20
eftir maggikri
Já þessar eiga það til að taka svokallað "ground loop". Ég horfði á nákvæmlega eins vél og þessa frá Great Planes fara á hvolf á gamla flugvellinum okkar(Suðurvelli, grasbraut)það var kani af vellinum sem var með hana. Hann kallaði þetta "Ground Loop". Þá skemmdist stélið(Fin) hjá honum og hann límdi það og fór aftur í loftið og þetta skeði aftur hjá honum. Þessar vélar eru greinilega ekki bestu æfingavélar, en ofsalega fallegar. Gangi þér vel Einar. Ertu ekki með aðra vél til æfinga og vetrarflugs?
kv
MK
Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 10. Feb. 2007 11:32:49
eftir einarak
takk fyrir það, þetta er eina vélin sem eg er með, þarf að græja undir hana skíði á næstunni, til að hafa klár
Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 10. Feb. 2007 13:12:04
eftir Siggi Dags
Hvar hafið þið verið að versla skíði?
Þið smíðið þau kanski sjálfir?

Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 10. Feb. 2007 13:58:33
eftir einarak
ég ætlaði mér bara að smíða þau úr 3-4mm áli, eru einhverjara reglur um hvernig er best að hafa þau í laginu? kanski 3cm á breidd og 15cm á lengd?
Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 10. Feb. 2007 14:31:43
eftir Steinar
Ég hef notað lok af rafmagnsrennum og það hefur bara virkað vel.

Re: Arnarvöllur - 9.febrúar 2007
Póstað: 10. Feb. 2007 16:22:03
eftir Gaui
[quote=einarak]eru einhverjara reglur um hvernig er best að hafa þau í laginu?[/quote]
Það eru engar reglur um neitt. Það eina sem þú þarft að hafa í huga er að skíðin séu ekki mikið þyngri en hjólin og að framendinn á skíðinu verður að vísa upp á meðan þú flýgur. Það er oft gert með því að setja gorm eða teygju í framendann og upp í stellið. Þá er engin hættta á að nefið á skíðunum rekist niður í lendingu með slæmum afleiðingum.
Hérna er dæmi um skíði sem ég fann í gamalli bók hjá mér. Það má laga þetta og aðlaga að hvaða módeli sem er. Skíðin eru gerð úr 2 - 3 lögum af þunnum krossviði til að fá beygjuna að framan.
