Síða 1 af 3

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 28. Feb. 2007 16:46:38
eftir Agust
Prófunarskýrslur fyrir Futaba 2,5 GHz eru hér á vef fjarskiptaeftirlitsins í USA (FCC):

https://gullfoss2.fcc.gov/prod/oet/cf/e ... SS1-24G%27

Fróðlegt fyrir þá sem vilja kíkja undir lokið. Þetta er víst trúnaðarmál, svo vinsamleagst opnið ekki skjölin.

Takið eftir hvað vefþjónninn heitir! Nafnið vakti athygli mína. https://gullfoss2.fcc.gov

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 28. Feb. 2007 16:51:57
eftir Agust

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 28. Feb. 2007 18:27:25
eftir Sverrir

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 28. Feb. 2007 21:29:56
eftir kip
Það hlýtur að vera íslenskur UT gaur í vinnu þarna :D

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 8. Apr. 2007 19:43:35
eftir Agust
Miklar umræður hér um það nýjasta frá Futaba

Futaba! Introducing The Futaba 12FG, Modules & More!

http://www.flyinggiants.com/forums/fg10 ... -more.html

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 8. Ágú. 2007 23:42:45
eftir Björn G Leifsson
2,4 GHz breiðist út...

Var éinhver búinn að sjá þetta:

http://www.xtremepowersystems.net/xtremelink.php

Módúlar fyrir allar gerðir stýringa og tvíhliða samskipti milli stýringar og flugtóls.

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 8. Ágú. 2007 23:54:07
eftir kip
Björn þetta hljómar vel! Maður er semsagt þá vel settur með að kaupa notaða stýringu sem er með skiptanlegum rf módúla og setja svona í, í staðin fyrir að kaupa nýja 2.4 stýringu

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 9. Ágú. 2007 00:01:49
eftir Björn G Leifsson
Ja,,, mín stýring (JR 9X-II ) er með svona módúl sem hægt er að taka úr... og auðvitað setja í aftur :) Mér skilst að ef ég skyldi vilja losna við peninga og við he-is loftnetið sem alltaf er að rekast í eða gleymast að draga út, jú og kristalinn sem Hjörtur er alltaf að taka úr og setja sína tíðni í, þá geti ég keypt svona og sett í og ... ja bara haldið áfram að fljúga, eða þannig.

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 9. Ágú. 2007 00:12:39
eftir tf-kölski
En maður er ekki með neina sérstaka tíðni á þessu 2,4 GHz er það? hvað gerir maður þá á melonum?

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstað: 9. Ágú. 2007 00:14:29
eftir Björn G Leifsson
Mynd

par af sendimódúl og móttakara kostar hjá þeim rétt rúma $200. Hver 10 rása móttakari kostar stakur $120 Átta rása $100 og sex rása án ytra loftnets fyrir báta og lítil ("short range") flugtól kostar tæpa $60.
Svo fær maður, fyrir $14 aðeins, lítinn dippedútt til að festa á stýringuna til að vega upp á móti breyttu jafnvægi þegar désk-ans blikkloftnetið er farið.
Mynd

Nú og fyrst Herr Sailer (Wolfgang) frá Þýskalandi þorir að treysta þessu fyrir F104 vélinni sinni sem er aðeins 3,7 metra löng þá ættum við ekki að þurfa að hafa áhyggjur, eða hvað?

Mynd