Módelvellir um víðaveröld

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Pitts boy
Póstar: 140
Skráður: 22. Feb. 2006 13:49:32

Re: Módelvellir um víðaveröld

Póstur eftir Pitts boy »

Sælir félagar.
Hér er kemur smá saga (samt ekki Smásaga :) ).
Þannig er að ég vara að pósta nokkrum myndum inn á facebook síðu Flugmódelklúbbsins Smástundar sem er í sjálfusér frásögufærandi (það er gert allt of sjaldan) en er samt ekki um það heldur að þar "líkar við" myndirnar þjóðverji sem heitir Arno Bertz. Ég þekki engin deili á manninum sjálfur en gamla forvitnin rekur mig smá rannsókn inn á facebook síðuna hanns sem leiðir mig svo inn á heimasíðu sem hann heldur úti um eitt af áhugamálum sínum sem er það að leita uppi módelflugvelli með Google earth :) (Held ég skilji það rétt með minni afar slöku Þýsku kunnáttu) en allavega deilir hann á þessari síðu sinni File-um/ skrám sem maður getur sótt og þegar maður opnar skránna oppnast Google Earth (það verður að vísu að vera búin að setja það upp í tölvuna sína áður https://www.google.com/earth/) með Link-um/hlekkjum á módel flugvelli um víða veröld þar sem hægt er að "súmma" inn myndina og sjá vellina, marga mjög greinilega.
Hann er búin að finna flesta vellina meira að segja hér á landi.
Ég er búin að liggja yfir þessu og finnst þetta algjörlega magnað.
Set hér fyrir neðan Linka/hlekki á síðurnar hanns bæði Facebook og svo heimasíðuna þar sem hægt er að sækja skrárnar.
Facebook:
https://www.facebook.com/arno.bertz.7?hc_location=ufi

Heimasíðan:
http://arnobertz.de/

Og svo Linkur/hlekkur á skrána sem ég sótti en þar eru gögn um allan heiminn í einni skrá ( Hann segir 10600+ vellir um viðaveröld):
http://arnobertz.de/?attachment_id=425

Vonandi hefur eitthver gaman að því að glugga í þetta eins og ég og svo það sem ég hlakka mest til að gera eftir þennan fund minn er að heimsækja eitthvað af þessum völlum þegar ég ferðast erlendis næst :)
Kveðja.
Einar Rúnar Einarsson
Fluggarpur.
Selfossi
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11465
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Módelvellir um víðaveröld

Póstur eftir Sverrir »

Það er einnig hægt að skoða þetta án þess að vera með Google Earth uppsett með því að smella sér á http://ma-db.com.

Eplasímaeigendur og róbótasímaeigendur geta einnig nálgast öpp með þessum upplýsingum sem kjörið er að vera með uppsett á ferðalögum. :)

Þið munið svo að senda inn myndir frá klúbbunum sem þið heimsækið!
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Pitts boy
Póstar: 140
Skráður: 22. Feb. 2006 13:49:32

Re: Módelvellir um víðaveröld

Póstur eftir Pitts boy »

Já er búin að vera í smá samskipum við kallinn (Arno Bertz) og hann sagði mér einmitt frá þessu í kvöld og ég ætlaði að fara að bæta þessu við en auðvitað vara Sverrir komin með þetta :)
Kveðja.
Einar Rúnar Einarsson
Fluggarpur.
Selfossi
Svara