Flugskýli í smíðum

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Agust »

Það eru fleiri en Suðurnesjamenn að koma sér upp aðstöðu. Einkaframtakið á fullu :)

Hef verið að dunda við að koma mér upp flugskýli með meiru. Var alla helgina að mála það að utan í Nató felulitum.

Mynd


Mynd
Hleðslutækið er tengt við Stearman sem er tilbúinn til flugs...Reyndar komin í loftið. FunTime svifflugan er fyrir aftan myndavélina.

Mynd
Flugvöllurinn heitir Iðavöllur. Hann fékk 40 kg af áburði um helgina. Big Lift flugdráttarvélin er hér að draga traktorinn í stífri norðanáttinni. Getur traktorinn flogið eins og ....http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=1082%20?
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Og hvenær verður fyrsta flugkoman??
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Sverrir »

Stórglæsilegt :)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Agust »

[quote=Björn G Leifsson]Og hvenær verður fyrsta flugkoman??[/quote]
Það er nú eiginlega flugkoma um hverja helgi, þó ekki sé hún fjölmenn...
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Sverrir »

Þurfum að bæta úr því við tækifæri ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
tf-kölski
Póstar: 125
Skráður: 19. Apr. 2007 16:34:21

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir tf-kölski »

Dem, svöl þessi "big lift" vél þarna á myndinni, tekur hún meter í takeoff?:D
Driving is for people who can't fly!
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Sverrir]Þurfum að bæta úr því við tækifæri ;)[/quote]
Þegar er á "að-gera-" bókfell mitt skráð sú fróma ósk, að einhvern fagran veðurdag í sumarleyfi komandi, hringja í Ágúst Jarl og að gæta hvort hann vilji við mér taka til skemmtiheimsóknar að frístundaóðali sínu í uppsveitum Árnessýslu. Að sjálfsögðu ráðgeri ég að með hafa flugtygi nokkur og reyna mig við fjarstýrðar fluglistarathafnir á þeim íðilgrænu völlum sem jarlinn hefur af iðju mikilli og atgerfi útbúið á landareign sinni.

(Ástæða skrúðmælgi þeirrar sem vér þessa stundina viljum við hafa er, að sonur vor, sem þér þekkið vel sakir fluglistaráhuga hans, situr hér andspænis mér og þylur sagnfræðiflaum mikinn um Skúla Jarl, Gissur og aðra forna kappa sem hann í dag hefursér til óbóta um lesið í undirbúningi prófannar við Lærða Skólann.)
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Agust »

Það er alltaf gaman að fá fíkla í heimsókn :)

Bið að heilsa skólasveininum í Latínuskólanum. Per ardua ad astra.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Sverrir »

[quote=Agust]Per ardua ad astra.[/quote]
Hver ætlar svo að nefna flugher/i sem hafa þetta sem mottó :)
Bannað að Googla ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flugskýli í smíðum

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Hann er RAF-magnaður
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara